Fyrrverandi og núverandi starfsmenn veitingastaðar grunaðir í hnífstungumáli 8. ágúst 2008 16:41 Árásin átti sér stað á Hverfisgötu.
Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur mönnum sem teknir voru vegna gruns um aðild að hnífstungu í miðborg Reykjavíkur. Ráðist var á erlendan karlmann aðfaranótt föstudagsins í síðustu viku og hann stunginn í bakið svo að mikið blæddi. Mennirnir tveir voru handteknir í fyrradag og úrskurðaðir í gæsluvarðhald til mánudags í Héraðsdómi og þá ákvörðun staðfesti Hæstiréttur. Fram kemur í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að sjá megi úr eftirlitsmyndavél hvar hópur þriggja manna og einnar stúlku gangi norður Ingólfsstrætið og beygi um hornið vestur Hverfisgötu. Skömmu síðar sést á myndskeiði úr eftirlitsmyndavél, sem snýr að Hverfisgötu, hvar einn úr ofangreindum hópi er í átökum og virðist sem hann haldi á áhaldi, sem grunur leikur á að sé hnífur. Aðrar myndir úr eftirlitsmyndavél virðist sýna tvo mannanna á hlaupum upp Hverfisgötuna á eftir þeim þriðja og virðist sem fatnaður annars tvímenningana komi heim og saman við fatnað manns úr ofangreindum hópi úr myndskeiði eftirlitsmyndakerfis.Lögreglan leitaði eftir upplýsingum úr eftirlitsmyndavélum veitingastaðar í miðbænum þar sem grunur lék á að hópurinn hefði verið að koma þaðan eða gengið þar framhjá. Hafi þá verið rætt við starfsmann staðarins, sem síðar gat nafngreint alla þá, sem sáust á útprentun af mynd úr eftirlitsmyndakerfi enda var um starfsmenn og fyrrverandi starfsmenn staðarins að ræða. Í kjölfarið voru karlarnir þrír handteknir. Sá þriðji var einnig úrskurðaður í gæsluvarðhald.Lögregla segir brotið sérstaklega alvarlegt því hættulegu vopni hafi verið beitt í árásinni. Rannsókn málsins standi nú yfir og sé á viðkvæmu stigi. Krefjist rannsóknarhagsmunir þess, að mönnunum verði gert að sæta gæsluvarðhaldi.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira