Innlent

Vinnutímalöggjöf gerir Iceland Express grikk

Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar

Vísi barst í kvöld hringing frá móður með þrjú börn sem beið á Akureyrarflugvelli eftir flugi Iceland Express til Kaupmannahafnar. Bilun kom upp í flugvélinni sem átti upprunalega að fara í loftið klukkan 15.30.

Móðirin sem hringdi var vægast sagt ósatt með þjónustuna og upplýsingar sem hún hafði fengið og sagðist hafa hvorki fengið kaffibolla handa sér né kubba handa börnunum.

Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Iceland Express, segist harma frásögn konunnar og að svona lagað eigi ekki að gerast. „Þegar flugi seinkar fer ákveðin starfsframkvæmd í gang sem á meðal annars að stuðla að því að farþegar fái að borða."

Flogið með nýja vél til Akureyrar

Flugvirkja var flogið til Akureyrar og vann hann að því að laga flugvélina. Hins vegar þótti ljóst að lengri tíma þurfti í lagfæra vélina en vinnutímalöggjöf flugvirkja gera ráð fyrir að megi vinna og því varð að leita annarra ráða.

Beðið var því eftir flugvél sem lenti á Keflavík í kvöld og er hún nú á leið til Akureyrar. Býst Matthías við að flugvélin fari með farþegana frá Akureyri, áleiðis til Kaupmannahafnar, um klukkan eitt í nótt.

Annað flug í vandræðum sökum hjartaáfalls farþega

Annað flug Iceland Express varð einnig fyrir barðinu á vinnutímalöggjöfinni en flug frá Barcelona þurfti að snúa við sökum þess að einn farþeganna fékk hjartaáfall. Vélin var komin nokkuð langt á leið og þegar komið var aftur til Barcelona mátti flugmaðurinn ekki starfa lengur samkvæmt vinnutímalöggjöf flugmanna. Því urðu allir farþegar flugvélarinnar að gista eina nótt til viðbótar í Barcelona.

Matthías segist miður sín á á öllum töfunum og þeim vandkvæðum sem farþegar flugfélagsins hafi orðið fyrir. Aðstæðurnar séu samt einfaldlega þannig að ekkert sé hægt að gera til þess að koma í veg fyrir þær. „Við reynum hins vegar að bregðast við og draga úr óþægindum eins og við getum."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×