Innlent

Segja N1 skulda viðskiptavinum umtalsverða lækkun

Runólfur Ólafsson er framkvæmdstjóri FÍB.
Runólfur Ólafsson er framkvæmdstjóri FÍB.

Forsvarsmenn Félags íslenskra bifreiðaeigenda segja olíufélagið N1 skulda viðskiptavinum sínum umtalsverða lækkun á verði eldsneytis í samræmi við lækkun heimsmarkaðsverðs. Þá segir einnig í harðorðum pistli á heimasíðu FÍB að tómt mál sé að tala um þjóðarsátt fyrir daufum eyrum olíukónganna hjá N1.

Tilefni greinarinnar er sú ákvörðun N1 í dag að hækka verð á bensíni um tvær krónur á lítra og um eina krónu á dísillítranum. Hjá N1 kostar bensílítrinn nú kr. 168,70 og dísilolían kostar kr. 184,60. Hækkanir voru einnig hjá dótturfélaginu EGO.

Ekki réttlætanleg hækkun í morgun

„Ef fréttamenn fjölmiðla leita eftir skýringum á hækkuninni í dag hjá N1 munu forsvarsmenn fyrirtækisins án efa benda á að gengi íslenskrar krónu gagnvart Bandaríkjadal hafi veikst um á þriðja prósent nú í morgun, föstudaginn 8.8.08. og því hafi hækkunin verið nauðsynleg, þar sem heimsmarkaðsverð olíu sé reiknað í dollurum," segir í pistlinum og bætt við: „En vonandi munu fréttamenn þá minna þá á að á sama tíma og fyrrnefnd veiking krónunnar varð, hefur heimsmarkaðsverð á olíu lækkað um rúmlega 1,5% það sem af er degi. Hækkunin í morgun hjá N1 og dótturfyritækinu EGO er því ekki réttlætanleg þrátt fyrir veikingu íslensku krónunnar."

FÍB bendir á að talsmenn olíufélaganna hafi ekki hirt um það að svara gagnrýni á það að olíufélögin hafi ekki skilað til neytenda lækkun á heimsmarkaði. Gagnrýni hafi verið svarað með hótfyndni um þekkingarleysi hjá FÍB og skorti á upplýsingum, sem hvort tveggja sé rangt.

Bensín ætti að vera tíu krónum ódýrara

„Það stendur greinilega ekki á N1 að hækka bensín og dísilolíu um leið og gengið lækkar. Það sýnir hækkunin fyrr í dag skýrt. N1 hefur heldur ekki verið lengi að því að hækka verðið þegar heimsmarkaðsveriði steig. N1 er hins vegar mun seinna til þegar heimsmarkaðsverð á olíu lækkar og/eða gengi krónunnar hækkar," segir einnig í pistlinum.

FÍB bendir á að kostnaðarverð á hvern lítra af bensíni og dísilolíu sé svipað og það var snemma í liðnum maí. Nýja verðið hjá N1 frá því í morgun sé nærri 10 krónum hærra á hvern bensínlitra miðað við verðið eins og það var fyrir þremur mánuðum og dísillítrinn sé hvorki meira né minna en um 18 krónum dýrari nú.

„Það er greinilega tómt mál að tala um þjóðarsátt fyrir daufum eyrum olíukónganna hjá N1 - stærsta olíufélaginu á Íslandi. En spyrja má hvort þetta sé það viðskiptasiðferði sem stjórnendur fyrirtækisins vilja láta kenna sig við??? Þeirra er valið," segir að lokum í pistlinum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×