Þorgerður vill efla menntakerfið til að styrkja atvinnulausa 7. nóvember 2008 14:07 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að hagspá Seðlabankans sé mjög dökk. Hún vill efla menntakerfið til að styrkja þá sem verða atvinnulausir. „Já, hún er mjög dökk. Ég dreg ekkert undan í því, en ég held að það sé miklu betra að við segjum hlutina eins og þeir eru," segir Þorgerður Katrín. Hún segist telja það betra að stjórnvöld viðurkenni að það séu erfiðir tímar framundan, með atvinnuleysi og erfiðleikum fyrir heimilin í landinu. „Við þurfum að setja fram markvissa áætlun um það hvernig við ætlum að taka á erfiðleikum fyrirtækja, erfiðleikum Íslendinga, í hvaða farveg við ætlum að beina til dæmis atvinnulausum," segir Þorgerður Katrín. Þorgerður segir mikilvægt að vera í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins á sem flestum sviðum. „Við eigum að fara saman í gegnum þessa erfiðleika," segir Þorgerður. Þá segist Þorgerður vilja nýta mjög mikið kosti og sveigjanleika menntakerfisins til að styrkja atvinnulausa. Þetta sé hægt að gera með því að efla háskólana og rannsóknir, styrkja sprotafyrirtæki og efla nýsköpunarsjóðinn. Þá vilji hún opna framhaldsskólann, styðja við símenntunarmiðstöðvarnar og opna frekar fræðslumiðstöð atvinnulífsins. „Meðan fólk er að bíða að þá á það að nýta tímann til að fjárfesta í framtíðinni þannig að staða þeirra verði sterkari þegar það kemur út úr einhverjum atvinnuleysistíma," segir Þorgerður.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Enginn meirihluti í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Tímasetning Canvas-árásarinnar engin tilviljun „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Sjá meira