Gunnar Páll: Ekkert athugavert 7. nóvember 2008 18:35
Gunnar Páll Pálsson formaður VR nýtur trausts meðal trúnaðarmanna félagsins til að sitja áfram sem formaður félagsins. Hann sér ekkert athugavert við að hann sem verkalýðsforingi - með laun sem slaga upp í laun forseta Íslands - berjist gegn ofurlaunum í samfélaginu. Spjótin hafa staðið á formanni VR undanfarna daga eftir að í ljós kom að hann samþykkti hinn umdeilda gjörning stjórnar gamla Kaupþings - að fella niður persónulegar ábyrgðir á lánum sem starfsmenn tóku til að kaupa hlut í bönkunum. Búið er að draga þann gjörning til baka. Nokkrir söfnuðust fyrir utan VR húsið í dag til að mótmæla. Á sama tíma mættu trúnaðarmenn félagsins á fund til að hlusta á útskýringar formannsins. Fundarmenn vildu ekkert tjá sig eftir fundinn heldur vísuðu í ályktun hans þar sem trúnaðarmenn fallast á að formaðurinn hafi verið að verja hagsmuni lífeyrissjóðsfélaga með þessu. Gunnar Páll var með um 550 þúsund krónur á mánuði fyrir að sitja fáeina fundi fyrir VR hjá Kaupþingi. En er trúverðugt að verkalýðsforingi eins og hann - sem var með um 1700 þúsund í mánaðarlaun - berjist t.d. gegn ofurlaunum í samfélaginu? Það er betra segir Gunnar Páll að stéttarfélög og lífeyrissjóðir hafi bein áhrif á aðgerðir og ofurlaun einkafyrirtækja, eins og Kaupþings, en að hneykslast á þeim á kaffistofum. Ekki var þó á honum að skilja að hann myndi sækjast eftir svo beinum áhrifum á næstunni. ,,Ég mun hugsa mig verulega um það áður en ég geri það aftur," sagði Gunnar aðspurður hvort hann muni sækjast eftir því að taka sæti í stjórnum hlutafélaga á nýjan leik.
Tengdar fréttir Gunnar Páll með sex milljónir á ári fyrir stjórnarsetu Gunnar Páll Pálsson formaður VR þáði 6,2 milljónir króna fyrir að sitja stjórnarfundi hjá gamla Kaupþingi á síðasta ári. Það er litlu minna en þingmenn þjóðarinnar fá í þingfararkaup. Siðfræðistofnun varaði við því fyrir fjórum árum að formaðurinn sæti í stjórn hlutafélags, eins og Kaupþings - það gæti stefnt trúverðugleika hans í hættu. 7. nóvember 2008 12:08 Boða til mótmæla við höfuðstöðvar VR Hópur félaga í VR hefur boðað til mótmælafundar við höfuðstöðvar félagsins í Húsi verslunarinnar. Hópurinn er óánægður með ákvörðun stjórnar Kaupþings um að fella niður ábyrgðir starfsmanna bankans vegna lána sem tekin voru vegna kaupréttarsamninga. Gunnar Páll Pálsson formaður VR sat í stjórn Kaupþings fyrir hönd Lífeyrissjóðs verslunarmanna og samþykkti hann gjörninginn sem hefur valdið ólgu víða. Stjórn félagsins hefur hins vegar lýst yfir fullum stuðningi við Gunnar Pál. 7. nóvember 2008 10:43 Mest lesið Íslendingur handtekinn á EM Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Hljóp á sig Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira
Gunnar Páll með sex milljónir á ári fyrir stjórnarsetu Gunnar Páll Pálsson formaður VR þáði 6,2 milljónir króna fyrir að sitja stjórnarfundi hjá gamla Kaupþingi á síðasta ári. Það er litlu minna en þingmenn þjóðarinnar fá í þingfararkaup. Siðfræðistofnun varaði við því fyrir fjórum árum að formaðurinn sæti í stjórn hlutafélags, eins og Kaupþings - það gæti stefnt trúverðugleika hans í hættu. 7. nóvember 2008 12:08
Boða til mótmæla við höfuðstöðvar VR Hópur félaga í VR hefur boðað til mótmælafundar við höfuðstöðvar félagsins í Húsi verslunarinnar. Hópurinn er óánægður með ákvörðun stjórnar Kaupþings um að fella niður ábyrgðir starfsmanna bankans vegna lána sem tekin voru vegna kaupréttarsamninga. Gunnar Páll Pálsson formaður VR sat í stjórn Kaupþings fyrir hönd Lífeyrissjóðs verslunarmanna og samþykkti hann gjörninginn sem hefur valdið ólgu víða. Stjórn félagsins hefur hins vegar lýst yfir fullum stuðningi við Gunnar Pál. 7. nóvember 2008 10:43