Ólíklegt að Bretar og Hollendingar geti stöðvað umsókn Íslands 6. nóvember 2008 17:32 Ólafur Ísleifsson
Ólíklegt verður að teljast að Bretar og Hollendingar geti stöðva umsókn Íslendinga um lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að mati Ólafs Ísleifssonar hagfræðings og fyrrverandi aðalfulltrúi kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. „Mér er það mjög til efs að þeir geti komið í veg fyrir þetta, en ég get skilið að þeir geti tafið málið eins og reyndin virðist hafa orðið," segir Ólafur. „Eins og málið hefur verið lagt fyrir af hálfu íslenskra stjórnvalda og sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, þá liggur fyrir samkomulag um efnahagsáætlun og fjárhagslega fyrirgreiðslu af hálfu IMF til þess að styðja við þá áætlun. Forstjóri IMF hefur lýst því að Íslendingar hafi lagt fram metnaðarfulla áætlun í efnahagsmálum sem sé þess verðug að alþjóðlegir aðilar leggi okkur lið," segir Ólafur og bætir því við að stjórnskipulag sjóðsins sé þannig að 24 manna framkvæmdarstjórn þurfi að staðfesta samkomulagið. „En það væri algjört fádæmi í sögu sjóðsins ef samkomulag sem hefur tekist með þessum hætti og hefur fengið blessun yfirstjórnar IMF yrði stöðvað í framkvæmdastjórninni. Þessi efnahagsáætlun hefur verið samin með aðstoð starfsmanna sjóðsins og þeir hafa lagt hana fyrir yfirstjórnina. Það myndi jafngilda vantrausti framkvæmdarstjórnar á yfirstjórn sjóðsins að reka hana til baka með samkomulag sem hún hefur skrifað upp á með þessum hætti."
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Sjá meira