Rannsaka þarf hvort lög hafi verið brotin hjá FL Group 10. nóvember 2008 16:02 MYND/GVA
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra telur að þar til bærum yfirvöldum beri að rannsaka það hvort ólöglega hafi verið staðið að flutningi á þremur milljörðum króna úr FL Group fyrir þremur árum. Þetta sagði hann í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, vakti athygli á fréttum helgarinnar og síðustu viku. Benti hann á að því hefði verið haldið fram að menn hefðu tekið þrjú þúsund milljónir úr almenningshlutafélagi og vísaði Bjarni þar til fregna af meintum ákvörðunum Hannesar Smárasonar, stjórnarformanni FL Group, að lána Pálma Haraldssyni þrjá milljarða til að kaupa flugfélagið Sterling. Þá benti Bjarni einnig á fregnir af því að starfsmenn Kaupþings hefðu fengið felldar niður ábyrgðir vegna hlutabréfakaupa í félaginu. Sagðist hann beina fyrirspurnum til iðnaðarráðherra því það háttaði svo til að makar tveggja ráðherra kæmu hér við sögur. Þar átti hann við Ingu Jónu Þórðardóttur, eiginkonu forsætisráðherra, sem sat í stjórn FL Group, og Kristján Arason, eiginmann menntamálaráðherra, sem vinnur hjá Kaupþingi. Vísaði Bjarni til þess að menntamálaráðherra hefði sagst vilja alla hluti uppi á borði og spurði hann því Össur hvað ríkisstjórnin ætlaði að gera til að tryggja það. Össur svaraði því til að hann að teldi skoða yrði af þar til bærum yfirvöldum og rannsakað hvort þrír milljarðar króna hefðu verið teknir í heimildarleysi út úr hlutafélaginu FL Group. Ef tilefni væri til ákæru yrði hún væntanlega lögð fram. Hins vegar væru menn saklausir uns sekt væri sönnuð. Þá vísaði hann til þess að dómsmálaráðherra hygðist brátt leggja fram frumvarp um embætti sérstaks saksóknara sem ætti að skoða aðdraganda hruns bankanna. Þetta væri hluti af þeirri allsherjarrannsókn sem þingheimur væri sammála um að ráðast í. Ekkert ætti undan að draga og allt ætti að koma upp á borðið, sama í hvaða stöðu menn væru.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Sjá meira