Innlent

Maðurinn fannst látinn í sumarbústað

Í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi vegna mannslát rétt fyrir utan bæinn kemur fram að rétt fyrir hálf níu í morgun hafi maður haft samband og sagst hafa komið að félaga sínum látnum í sumarbústað sem þeir gistu í ásamt tveimur konum.

„Lögregla og sjúkralið fóru á vettvang og var staðfest að maðurinn, sem er af erlendum uppruna væri látinn. Hann var fæddur árið 1970, búsettur í Reykjavík. Þrír samlandar hins látna sem voru á vettvangi voru færðir á lögreglustöðina á Selfossi og njóta réttarstöðu grunaðra vegna málsins. Tæknideild Lögreglu höfuðborgarsvæðisins og réttarmeinafræðingur rannsaka vettvang. Fólkið í haldi lögreglu er á aldinum frá 18 ára til 32 ára.," segir í tilkynningunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×