Spyr hvort lægsta tilboð í byggingu skóla sé endilega hagstæðast 8. ágúst 2008 10:33 Óskar Bergsson.
Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, spyr hvort borgin hafi í raun tekið hagstæðasta tilboði í byggingu Sæmundarskóla í Norðlingaholti með því að semja við erlendan verktaka. Hann bauð aðeins tveimur prósentum betur en íslenskt fyrirtæki sem átti næstlægsta tilboð. Í fyrirspurn á fundi borgarráðs í gær vakti Óskar athygli á því að borgin hefði samið við litháískt fyrirtæki um byggingu skólans. Munur á milli litháíska fyrirtækisins og íslensks fyrirtækis var aðeins tvö prósent eða u.þ.b. 30 milljónir. „Þessi litli munur á milli tilboða vekur upp spurningar hvort lægsta tilboð í þessu tilviki sé í raun það hagstæðasta. Samskipti aðila af ólíku þjóðerni eru í eðli sínu flóknari og tímafrekari heldur en gerist og gengur og því þarf að leggja meiri vinnu og fjármuni í umsjón, eftirlit og túlkaþjónustu heldur en ef um íslenskt fyrirtæki væri að ræða," segir í fyrirspurninni. Óskar segir þó að ekki megi misskilja fyrirspurnina á þann veg að íslenskir framkvæmdaaðilar sniðgangi skilmála EES-samningsins heldur sé aðeins tveggja prósenta munur á milli tilboða það lítill að lægsta tilboð þurfi ekki að vera það hagstæðasta. „Var það skoðað af innkauparáði og framkvæmda- og eignasviði hvort aukin umsýsla og áhætta við samninginn hefði aukinn kostnað í för með sér? Var lægsta tilboð í Sæmundarskóla í raun það hagstæðasta eða hefði verið hagstæðara fyrir borgina að taka næstlægsta tilboðinu vegna minni áhættu og skilvirkari samskipta?" spyr Óskar. Þess má geta að fyrirtækið sem samið var við, Adakris, átti ásamt íslenska félagnu Toppverktökum lægsta tilboð í síðasta hluta tvöföldunar Reykjanesbrautar. Vegagerðin ákvað hins vegar að ganga ekki til samninga við fyrirtækin og sagði í tilkynningu fyrr á árinu að þau hefðu ekki uppfyllt kröfur Vegagerðarinnar.
Mest lesið 51 prósent sé nóg Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Innlent Fleiri fréttir Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi Sjá meira