Tryggðu sér stórt lán með mjög lágu skuldatryggingaálagi 1. apríl 2008 17:37 MYND/E.Ól
Hafnarfjarðarbær hefur tryggt sér um það bil þriggja milljarða króna lán hjá írskum banka vegna framkvæmda í sveitarfélaginu sem er með 75 punkta skuldatrygginaálag á evrum og 85 punka álag á kanadadal. Það er margfalt minna en skuldatryggingaálag bankanna um þessar mundir. Hafnarfjarðarbær stendur fyrir miklum framkvæmdum á 100 ára afmæli bæjarins í ár og verða framkvæmdir fyrir um sjö milljarða. Á fundi bæjarstjórnar í dag var tekin fyrir þriggja ára fjárhagsáætlun bæjarins og í tengslum við framkvæmdirnar leitaði bærinn tilboða hjá innlendum og erlendum fjármálastofnunum í lánsfjármögnun. Samkomulag náðist við hinn írska Depfa Bank um 25 milljóna evra, jafnvirði nærri þriggja milljarða króna, lán til þriggja ára, en bæjarfélagið hefur skipt við bankann nokkrum sinnum áður. Er lánið tekið til að fjármagna þær framkvæmdir sem fram koma í fjárhagsáætlun 2008-2011. Samþykkt var á bæjarstjórnarfundi að ráðast í lántökuna. Í minnisblaði fjármálastjóra Hafnarfjarðarbæjar segir að að teknu tilliti til núverandi markaðsaðstæðna og fyrirhugaðrar sölu á eignum bæjarins hafi þótt ráðlegra að semja ekki við lánveitanda til langs tíma og í því ljósi sé óhætt að fullyrða að tilboð Depfa Bank sé afar hagstætt. Um er að ræða þriggja ára fjölmynta veltiláni með tiltölulega lágu skuldatryggingaálagi eða frá 75 punktum á evrum og upp í 85 punkta á kanadadal. Skuldatrygginaálag hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu í tengslum við lausafjárkreppu á alþjóðamörkuðum. Álagið er almennt talið vera einn besti mælikvarðinn á þau markaðskjör sem aðilar standa frammi fyrir á alþjóðlegum skuldabréfamörkuðunum. Til samanburðar er skuldatryggingaálag Glitnis nú 1002 punktar, Kaupþings 990 og Landsbankans 841 punktur.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Fleiri fréttir Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Sjá meira