Segir engin lög hafa verið brotin 9. nóvember 2008 20:41 Hannes Smárason
Hannes Smárason segir að engin lög hafi verið brotin og vísar ásökunum Morgunblaðsins um ólögmætar peningamillifærslur á bug. Morgunblaðið segir frá því í morgun að heimildir blaðsins hermi að FL, sem Hannes gegndi stjórnarformennsku í, hefði flutt 3 milljarða króna á reikning hjá Kaupþingi í Lúxemborg. Þeir fjármunir hafi síðan verið notaðir af Pálma Haraldssyni til kaupa á Sterling flugfélaginu. Hannes segir fréttina afar ósmekklega og bendir á að FL group hafi látið gera óháða úttekt á þessu máli í aðdraganda aðalfundar félagsins árið 2006, auk þess sem þessum fullyrðingum hafi ítrekað verið svarað. Yfirlýsinguna í heild sinni má sjá hér að neðan: Yfirlýsing frá Hannesi Smárasyni Í tilefni af skrifum blaðamanns Morgunblaðsins í sunnudagsblaðinu í dag og þeim aðdróttunum sem þar eru þá er þeim alfarið hafnað. Engin lög voru brotin eins og gefið er í skyn og er allur málflutningur í fréttinni afar ósmekklegur. FL group lét gera óháða úttekt á þessu máli í aðdraganda aðalfundar félagsins 2006 og hefur ítrekað svarað þessum fullyrðingum. Í þessu sambandi er rétt að rifja upp aðalfund félagins frá árinu 2006 þar sem þetta mál var til umræðu. Á fundinum komu fram spurningar frá Vilhjálmi Bjarnasyni um ólögmætar millifærslur og svör í tengslum við þessar meintu millifærslur félagsins, lögmæti þeirra og niðurstöður sérstakrar rannsóknar sem stjórn félagsins lét framkvæma. Auðveldast er að vitna hér til orða Jóns S. Helgasonar endurskoðanda hjá KPMG um þessi mál frá aðalfundinum 2006: „Jón S. Helgason löggiltur endurskoðandi hjá KPMG tók þvínæst til máls að beiðni Stjórnarformanns. Hann áréttaði að endurskoðendur hefðu áritað síðasta uppgjör félagsins án athugasemda og þar kæmi fram að þeir styddust við alþjóðlegar reglur. Hann sagði að fram hefði farið skoðun á stærri færslum hjá FL Group á því tímabili (innskot: sumarið 2005 sérstaklega) sem Vilhjálmur Bjarnason væri að spyrja um. Málum væri þannig háttað að töluverðir fjármunir væru í ávöxtun á hverjum tíma, en skemmst væri frá því að seigja að allar útborganir félagsins hefðu skilað sér til baka með eðlilegri ávöxtun innan mislangs tíma og hann gæti staðfest að þar væru engar slíkar greiðslur sem Vilhjálmur vísaði til" Þessi yfirlýsing var birt og undirrituð athugasemdalaust af fundarstjóra og fundaritara og var öllum hluthöfum gefinn kostur á að lesa hana yfir og koma með athugasemdir sem engar bárust. Þá hafa hluthafar og fjölmiðlar haft aðgang að fundargerðinni eins og lög kveða á um. Einnig skal bent á að hluthafafundur almenningshlutafélags er æðsta vald félagsins og þar gefst öllum kostur á að koma fyrirspurnum sínum á framfæri. Virðingarfyllst, Hannes Smárason
Tengdar fréttir Pálmi tjáir sig ekki um milljarðana þrjá frá FL Sumarið 2005 lét Hannes Smárason, þá stjórnarformaður FL, flytja án heimildar þrjá milljarða króna af reikningum FL til Kaupþings í Lúxemborg, til þess að hjálpa Pálma Haraldssyni við að greiða fyrir kaupin á lággjaldaflugfélaginu Sterling í Danmörku. Þetta kemur fram í grein Agnesar Bragadóttur blaðamanns í Morgunblaðinu í dag. 9. nóvember 2008 13:02 Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira
Pálmi tjáir sig ekki um milljarðana þrjá frá FL Sumarið 2005 lét Hannes Smárason, þá stjórnarformaður FL, flytja án heimildar þrjá milljarða króna af reikningum FL til Kaupþings í Lúxemborg, til þess að hjálpa Pálma Haraldssyni við að greiða fyrir kaupin á lággjaldaflugfélaginu Sterling í Danmörku. Þetta kemur fram í grein Agnesar Bragadóttur blaðamanns í Morgunblaðinu í dag. 9. nóvember 2008 13:02