Innlent

Óku of hratt á Reykjanesbrautinni

MYND/Guðmundur

Þrír ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í nótt. Sá sem hraðast ók mældist á hundrað fjörtíu og eins kílómetra hraða en hámarkshraði á brautinni er nítíu. Mikill mannfjöldi var í miðbæ Reykjanesbæjar í nótt. Talsvert var því um útköll hjá lögreglunni vegna pústra milli manna og ölvunarláta og þurfti einn að leita til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×