Innlent

Ljósmæður greiða atkvæði um verkfallsaðgerðir

Guðlaug Einarsdóttir er formaður Ljósmæðrafélags Íslands.
Guðlaug Einarsdóttir er formaður Ljósmæðrafélags Íslands.

Atkvæðagreiðsla hófst í morgun um verkfallsaðgerðir Ljósmæðrafélags Íslands sem gripið verður til náist ekki samkomulag um nýjan kjarasamning við ríkið.

Félagsfundur Ljósmæðrafélagsins samþykkti í síðustu viku að ganga til atkvæðagreiðslunnar eftir árangurslausan fund forsvarsmanna Ljósmæðrafélagsins með samninganefnd ríkisins. Ljósmæður skrifuðu ekki undir kjarasamning sem BHM gerði við ríkið í síðasta mánuði og vilja leiðréttingu á launum sínum í samræmi við menntun þeirra.

Gert er ráð fyrir fimm sjálfstæðum verkföllum ljósmæðra sem hefjast með tveggja sólahringa vinnustöðvun 4. og 5. september. Stigmagnandi verkföll verða út mánuðinn og lýkur með allsherjarverkfalli 29. september hafi ekki samist fyrir þann tíma.

Atkvæðagreiðslan um verkfallsaðgerðirnar stendur fram á föstudag. Að sögn Guðlaugar Einarsdóttur, formanns Ljósmæðrafélags Íslands, er næsti samningafundur með ríkinu 26. ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×