Utanríkisráðherra vinnur að samstarfi Ísafjarðar og A-Grænlands 11. ágúst 2008 18:46 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra.
Möguleikar Vestfjarða sem þjónustumiðstöð fyrir atvinnustarfsemi og auðlindanýtingu á Austur-Grænlandi og ný störf á Ísafirði á vegum utanríkisráðuneytisins voru á meðal þess sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ræddi við sveitastjórnarmenn á Vestfjörðum í heimsókn sinni til Ísafjarðar í dag, samkvæmt tilkynningu utanríkisráðuneytisins. Stofnaður hefur verið vinnuhópur sem í sitja fulltrúar frá Grænlandi og Íslandi til að kortleggja framtíðarsamstarfsmöguleika landanna, til dæmis varðandi þjónustu í tengslum við málmvinnslu, olíuleit og -vinnslu á Austur-Grænlandi, svo og ferðaþjónustu. Í þeirri vinnu verður sérstaklega horft til Ísafjarðar. Hefur utanríkisráðherra ákveðið, í samráði við Halldór Halldórsson bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, að láta gera sérfræðiúttekt á möguleikum Ísafjarðar sem þjónustumiðstöðvar gagnvart Austur-Grænlandi. Vinnan verður kostuð til helminga af utanríkisráðuneytinu og Ísafjarðarbæ. Þá skýrði Ingibjörg Sólrún frá því að utanríkisráðuneytið hyggst setja á fót útibú frá Þýðingarmiðstöð ráðuneytisins á Ísafirði með þremur stöðugildum. Á fundum ráðherra og sveitarstjórnarmanna voru ennfremur rædd málefni Norðurslóða og auknar siglingar á svæðinu milli Íslands og Grænlands. Hafa yfirvöld í báðum löndum áhyggjur af aukinni slysahættu sem skapast með þessari miklu umferð.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira