Forseti viðskiptadeildar HR segir skólann ekki hafa keypt niðurstöður Breki Logason skrifar 21. maí 2008 11:51 Þorlákur Karlsson forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík.
Þorlákur Karlsson forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík segir alrangt að skólinn hafi keypt niðurstöður ráðgjafafyrirtækisins Eduniversal, sem segja skólann einn af bestu viðskiptaháskólum í Vestur-Evrópu. Forseti viðskiptadeildar Háskóla Íslands sendi nemendum bréf nýlega þar sem hann gagnrýnir niðurstöðuna og leiðir að því líkur að niðurstöðurnar hafi verið keyptar. „Það er fjöldi aðila sem metur háskóla og nota þeir mismunandi aðferðir. Þetta er ein aðferðin og voru gæðin metin útfrá ákveðnum stöðlum sem eru tilgreindir á heimasíðu Eduniversal," segir Þorlákur. Runólfur Smári Steinþórsson formaður viðskiptaskorar Háskóla Íslands hefur gagnrýnt útnefningu Háskólans í Reykjavík harðlega. Hann segir meðal annars í fyrrnefndu bréfi að upplýsingarnar á heimasíðu Eduniversal séu oftúlkaðar og þar komi því miður ekkert fram sem styður að um sé að ræða vandaða úttekt og tilnefningu á "Bestu" háskólunum í heiminum. Þorlákur sem tók þátt í valinu er ósammála þessu og segir fjölda sérfræðinga hafa unnið lengi við að taka saman tillögur. „Síðan hittist alþjóðleg nefnd prófessora á einum degi til þess að gefa lokasamþykki fyrir tillögunum," segir Þorlákur. Hann segir að síðan hafi verið gerð könnun á meðal deildarforseta út um allan heim þar sem lögð var fyrir þá einföld spurning um hvort þeir mæltu með viðkomandi skóla eða ekki. „Ég er auðvitað mjög stoltur yfir því að fjórði hver af þeim þúsund sem svöruðu hafi mælt með okkur. Að þetta hafi verið gert á einum degi eins og einhverjir hafa haldið fram er ekki rétt, viðmiðin eru mun ítarlegri." Runólfur segir einnig í bréfinu að ekki sé hægt að kaupa orðstí háskóla, heldur þurfi menn að vinna fyrir honum. „Þarna hlýtur hann að eiga við að við höfum keypt þetta sem er alsendis rangt. Þetta er sjálfstætt ráðgjafafyrirtæki sem lifir af því að vera með ráðgjöf við nemendur og skóla um það besta sem er í boði. Þegar þú ert óháður þarftu að lifa af, t.d með auglýsingum eða öðru sem skapar tekjur. Það kemur hinsvegar þessari könnun ekkert við. Auðvitað borguðum við ekki fyrir þetta og að halda því fram að við höfum keypt niðurstöðurnar er ekki rétt. Ég hef t.d aldrei verið beðinn um að auglýsa á síðunni. Ég fékk könnunina og síðan fékk ég niðurstöður, það eru einu tengslin." Þorlákur ítrekar að þetta sé einungis ein leið til þess að kanna gæði Háskóla. „Sumir tala við atvinnurekendur sem hafa ráðið nemendur, aðrir tala við nemendurna sjálfa og sumir við starfsmenn. Þessi leið var skýr og voru deildarforsetar einungis spurðir hvort þeir mæltu með viðkomandi skóla. Í ljósi þess erum við í Háskólanum í Reykjavík ákaflega ánægð með þessar niðurstöður."
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Sjá meira