Sturla treystir umboðsmanni - Guðlaugur segir hann ekki hafinn yfir gagnrýni 28. mars 2008 22:20
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, segist bera fullt traust til umboðsmanns Alþingis í hans mikilvægu störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá honum vegna spurninga fjölmiðla um ummæli Árna Mathiesen, setts dómsmálaráðherra, í tengslum við athugun umboðsmanns á skipun Þorsteins Davíðssonar í embætti héraðsdómara. Árni sakaði umboðsmann í svarbréfi sínu um að hafa myndað sér skoðun fyrir fram á málinu. Í tilkynningu forseta Alþingis minnir hann á að umboðsmaður hafi verið endurkjörinn til starfsins næstu fjögur ár í desember síðastliðnum og hafi hlotið við það kjör einróma stuðning Alþingis. ,,Aðalatriði þessa máls er að mínu mati að umboðsmaður Alþingis fái starfsfrið til að ljúka athugun sinni á því máli, sem til hans hefur verið vísað, og geti gefið álit sitt á því, eins og lög segja til um. Ég vonast einnig til þess að við frekari meðferð málsins hjá umboðsmanni leysist sá ágreiningur sem nú er uppi og að fullt traust geti ríkt milli þingmanna og ráðherra annars vegar og umboðsmanns Alþingis hins vegar enda er slíkt traust forsenda þess að embætti umboðsmanns Alþingis geti sinnt hlutverki sínu og að álit hans geti verið stjórnsýslunni til halds og trausts," segir Sturla. Flokksbróðir Árna og Sturlu, Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra, sagði hins vegar um málið eftir ríkisstjórnarfund í morgun að umboðsmaður væri ekki hafinn yfir gagnrýni. Það kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Innlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira