Ekkja Bobby Fischer erfir 140 milljónir 22. janúar 2008 14:14
Miyoko Watai, ekkja Bobby Fischer, mun erfa þær 140 milljónir sem Fischer skildi eftir sig við andlát sitt. Staðfest hefur verið að Watai var eiginkona Fischers en ekki unnusta eins og oft hefur verið haldið fram og mun því erfa þær rúmu 140 milljónir króna sem Vísir hefur heimildir fyrir að hann láti eftir sig, auk 67 fermetra íbúðar í Espigerði. Eins og kom fram í hádegisfréttum Stöðvar 2 er fyrrverandi mágur Fischer og faðir tveggja systrasona hans, Russel Targ, hér á landi til þess að gæta hagsmuna sona sinna. Haft er eftir honum á vef Morgunblaðsins að hann vilji ganga úr skugga um hvort Fischer hafi skilið eftir sig eiginkonu eða börn. Sé það raunin eigi hann ekkert erindi hér. Sé það hins vegar ekki raunin mun Targ væntanlega gera kröfu í eigur Fischer í nafni sona sinna enda þeir hans nánustu eftirlifandi ættingjar.. Fjármunirnir sem Fischer lætur eftir sig er hluti af verðlaunafé sem hann fékk fyrir hið umdeilda skákeingvígi sem hann háði við Boris Spassky í Sveti Stefan og Belgrad árið 1992 og olli því að hann lenti upp á kant við bandarísk stjórnvöld. Því var lengi haldið föstu inn á svissneskum bankareikningum en samkvæmt heimildum Vísis rifti bankinn viðskiptum sínum við Fischer skömmu eftir að hann settist að hér á landi og lagði peningana inn á reikning í hans nafni í Landsbankanum. Íbúðina í Espigerði keypti Fischer árið 2004. Hún er á níundu og efstu hæð í fjölbýli en náinn vinur hans, Garðar Sverrisson, býr á sjöundu hæðinni. Því hefur lengi verið haldið fram að Fischer hafi feðrað stúlku á Filippseyjum en Vísir hefur ekki upplýsingar um að hann hafi verið í samskiptum við móður hennar síðan. Þar afleiðandi munu eigur Fischer renna óskipt til eiginkonu sinnar Miyoko Watai. Þau voru lengi nánir vinir og giftu sig þegar deilan um framsal hans frá Japan til Bandaríkjanna stóð sem hæst.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Fleiri fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Sjá meira