Almættið er í liði með Vestmannaeyingum 3. ágúst 2008 16:34 Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. „
Stundum verður maður svolítið hissa á fréttaflutningi af því að einn maður sitji í fangageymslum af 13 þúsund," segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. „Fréttin er þá náttúrulega sú að hinir 12.999 voru til fyrirmyndar," bætir hann við. Elliði segir að það sé feikilega góð stemning í Vestmannaeyjum og hann sé alltaf jafn snortinn á hverju ári yfir því hversu vel takist til við að halda Þjóðhátíð. „Málið er að við kunnum þetta svo vel enda erum við búin að halda tæplega 140 þjóðhátíðir," segir Elliði. Hann segir að stemningin í kringum hátíðina sé einstök og áberandi hversu mikil áherslan er lögð á Þjóðhátíð sem barna- og fjölskylduskemmtun. „Ég er einmitt núna með fjögurra ára gamalli dóttur minni á danspallinum þar sem er barnadansleikur," segir Elliði. Elliði segir að skemmtileg hefð sé fyrir því að Þjóðhátíðarnefnd heiti á Landakirkju með fjárframlögum til kirkjunnar. „Og ég er alveg sannfærður um það að almættið er í liði með okkur þessa helgi eins og allar aðrar," segir Elliði. Elliði segir að í ljósi þess að ófært sé með flugi til Vestmannaeyja séu mótshaldarar farnir að undirbúa viðbrögð ef óbreytt ástand verði á morgun. Þá muni 1500 manns þurfa að breyta ferðaáætlunum sínum. Íþróttahús Vestmannaeyjabæjar muni þá standa þeim opin þeim að endurgjaldslausu.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Innlent Fleiri fréttir Gulu hjólin þar sem slysin og óhöppin hafa orðið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Sjá meira