Innlent

Óvíst hvort Sigurður G. geti varið Jón Ólafsson

Haukur Örn Birgisson
Haukur Örn Birgisson

„Mér er kunnugt um nokkra hæstaréttadóma sem hafa fallið þar sem dómari synjaði sakborningi um verjanda að eigin vali vegna stöðu lögmannsins sem vitnis," segir Haukur Örn Birgisson héraðsdómslögmaður.

Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari hjá Ríkislögreglustjóra, krefst þess að Sigurður G. Guðjónsson verði ekki skipaður verjandi Jóns Ólafssonar athafnamanns í dómsmáli sem höfðað hefur verið gegn Jóni. Helgi Magnús ber því við að Sigurður kunni mögulega að vera kallaður til sem vitni.

Haukur segist ekki hafa kynnt sér mál Jóns Ólafssonar, að öðru leyti en því sem hann hafi lesið og heyrt í fjölmiðlum. „En það sem skiptir máli í tilfelli Jóns Ólafssonar er á hvaða hátt Sigurður G. Guðjónsson tengist málinu," segir Haukur Örn. Hann bendir á að það sé í valdi dómarans að meta það.

Haukur segir að réttur manns til að fá skipaðan verjanda að eigin vali sé mjög ríkur. Kveðið sé á um þetta í lögum um meðferð opinberra mála og Mannréttindasáttmála Evrópu. „Þessi réttur að fá lögmann að eigin vali er mjög ríkur. Allar reglur sem víkja frá þessum rétti þarf að skýra mjög þröngt og þannig er notkun undantekninganna mjög takmörkuð. Skilyrði fyrir slíkum undantekningum þurfa að byggja á mjög veigamiklum rökum," segir Haukur.

Hins vegar bendir Haukur á að í lögum um meðferð opinberra mála sé kveðið á um að ekki megi skipa eða tilnefna verjanda sem kunni að verða kvaddur til að bera vitni. „Dómari þarf að meta í þessu máli með hliðsjón af þeim gögnum sem ákæruvaldið hefur lagt fram hvort sá lögmaður sem Jón Ólafsson hefur óskað eftir að verði skipaður verjandi sinn geti haft stöðu vitnis í málinu," segir Haukur. Hann segir ljóst að dómarinn þurfi að fara mjög varlega í þessu mati þar sem að synjun hans um skipun verjanda feli í sér undantekningu frá áðurnefndum rétti Jóns.

„Það verður spennandi að sjá hvaða niðurstöðu dómurinn kemst að," segir Haukur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×