Góðri grásleppuvertíð að ljúka 5. ágúst 2008 12:24
Einhverri bestu grásleppuvertíð í manna minnum er að ljúka. Verð fyrir hrognin hefur stigið jafnt og þétt í sumar og hefur aldrei orðið hærra í krónum talið. Nær eingöngu hrognin eru nýtt af grásleppunni og er nú búið að salta hrogn í um það bil ellefu þúsund tunnur. Það er hátt í þrjú þúsund tunnum meira en að meðaltali síðastliðin tíu ár. Veiðarnar hafa líka verið óvenju arðbærar í sumar þar sem aðeins 200 bátar haf náð þessum afla en hátt í 350 bátar hafa stundum róið á grásleppu. Auk þess mátti hver bátur aðeins veiða í 50 daga í stað 90 daga áður og veðrufar var yfirleitt gott þannig að sáralítð netatjón varð að þessu sinni. Þessi óvenju mikli afli skapar ekki offramboð á heimsmarkaði því veiðarnar á Nýfundnalandi brugðust alveg í sumar og veiðar við Grænland og Noreg voru í meðallagi. Afli íslensku grásleppubátanna lætur nærri að vera um þriðjungur heimsaflans í sumar. Verðið var um 60 þúsund fyrir tunnuna í upphafi vertíðar en er nú komið upp undir 90 þúsund krónur.
Mest lesið „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Innlent Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Innlent 51 prósent sé nóg Innlent Fleiri fréttir Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Sjá meira