Tengdi viðræður við Rússa ekki við herstöðvarafnot 12. nóvember 2008 10:39
Það er fjarri lagi að forseti Íslands hafi tengt viðræður Íslendinga við Rússa um lán við hugsanleg afnot þeirra af fyrrverandi herstöð Bandaríkjamanna á Íslandi á hádegisverðarfundi með erlendum erindrekum í síðustu viku. Þetta fullyrðir forsetaskrifstofa í samtali við fréttastofu. Erlendir miðlar fjalla margir hverjir um fundinn og segja Ólaf Ragnar Grímsson hafa gagnrýnt Svía, Dani og Breta fyrir að hafa snúið baki við Íslendingum í þeirri efnahagskreppu sem landið glími við. Á vef norska ríkisútvarpsins var vitnað til minnisblaðs norskra stjórnvalda um fundinn þar sem fullyrt er að forsetinn hafi sagt að Íslendingar myndu hugsanlega leita sér nýrra bandamanna þar sem núverandi bandamenn hefðu svikið þjóðina. Einnig hefði hann viðrað þá hugmynd að Rússum yrði boðin aðstaða í gömlu herstöðinni á Kelfavíkurflugvelli. Eru erindrekarnir sagðir hafa verið furðu lostnir á reiðilestri forsetans gagnvart hinum gömlu vinaþjóðum. Þær upplýsingar fengust hjá forsetaskrifstofunni í morgun að forsetinn hefði átt hádegisverðarfund með erlendum sendiherrum og fulltrúum erlendra sendiskrifstofa á föstudag og það hafi verið liður í reglulegum fundum af því tagi. Fundurinn fór fram í danska sendiráðinu. Forsetinn muni ekki tjá sig um þær umræður sem þar hafi farið fram en þó tekur forsetaskrifstofa sérstaklega fram að fréttaflutningur af fundinum sé ónákvæmur. Til dæmis sé fjarri lagi að að Ólafur Ragnar Grímsson hafi tengt viðræður Íslendinga við Rússa við fyrrverandi herstöð Bandaríkjamanna hér á landi.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fleiri fréttir Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Sjá meira