Viðmót eldri kvenna þægilegra Atli Steinn Guðmundsson skrifar 12. nóvember 2008 08:13
Fimmtíu ára og eldri konur eru almennt geðbetri en þær yngri og ólíklegra að þeim sé í nöp við sér yngri konur. Þessar góðu fréttir eru byggðar á rannsókn sem dr. Benedict Jones og aðstoðarmenn hans við Háskólann í Aberdeen framkvæmdu með því að sýna 100 konum á fimmtugs- og sextugsaldri myndir af öðrum konum. Þær voru svo beðnar að láta í ljós álit á því sem við þeim blasti. Þá kom í ljós að þær kvennanna sem komnar voru úr barneign voru mun líklegri til að fallast á að konurnar á myndunum væru aðlaðandi en hinar sem ekki höfðu náð því stigi lífsins. Frá þeim var mun frekar að vænta hrakyrða í garð myndefnanna. Jones telur skýringuna á þessu einfaldlega vera þá að konurnar sem komnar eru úr barneign líti ekki lengur á aðrar konur sem keppinauta sína um hylli karldýra tegundarinnar. Félagslegt hlutverk eldri kvennanna sé breytt og hormónaflæðið ólíkt. Þeim sé mun meir hugað um starfsframa sinn og framgang í lífinu en að finna sér maka og hlaða niður börnum enda séu þær flestar löngu búnar að því. Ekki fylgir sögunni hvernig þeim fræðingum í Aberdeen kom í hug að kanna þetta mál en augljóst er að Jónas hafði rétt fyrir sér þegar hann orti vísindin efla alla dáð, orkuna styrkja, viljann hvessa.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Sjá meira