Sæunn vill vera ritari áfram 16. desember 2008 17:22 Sæunn Stefánsdóttir, ritari Framsóknarflokksins.
Sæunn Stefánsdóttir ritari Framsóknarflokksins og fyrrum þingmaður flokksins hefur ákveðið að gefa kost á sér áfram sem ritari. Hún hefur verið ritari flokksins frá árinu 2006. ,,Okkar framsóknarmanna bíður mikil vinna við endurreisn flokksins okkar og vil ég taka þátt í þeirri vinnu," segir Sæunn í tilkynningu. Hún vill leggja sitt af mörkum svo að Framsóknarflokkurinn verði það umbótaafl í íslensku samfélagi sem hún segir að það þarfnist. Sæunn var þingmaður frá 2006 til 2007. Áður hafði hún verið aðstoðmaður Jón Kristjánssonar ráðherra. Sæunn starfar hún á skrifstofu Kristínar Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands. Yfirlýsing Sæunnar: Flokkar eru fyrir fólk Framsóknarflokkurinn er 92 ára og er hann því elstur stjórnmálaflokka. Hugsjónir hans á grundvelli ungmennafélagshreyfingarinnar og samvinnuhreyfingarinnar eru í fullu gildi. Fólk vill stjórnmálaflokka með skýra stefnu og ný vinnubrögð. Við eigum að svara þessu kalli tímans. Umbrotatímar eru tímar endurmats og gefa okkur tækifæri til að móta okkur skýra framtíðarsýn. Í hvernig samfélagi viljum við búa? Ég vil leggja mitt af mörkum svo að Framsóknarflokkurinn verði það umbótaafl í íslensku samfélagi sem það þarfnast. Ég gef kost á mér áfram sem ritari Framsóknarflokksins. Okkar framsóknarmanna bíður mikil vinna við endurreisn flokksins okkar og vil ég taka þátt í þeirri vinnu. Framsóknarflokkurinn á þess kost að verða fyrstur stjórnmálaflokka til að endurnýja flokksforystuna við þær aðstæður sem uppi eru í samfélaginu. Hleypa að nýrri kynslóð og nýjum vinnubrögðum. Í þessari vinnu verðum við að endurskoða það sem betur hefði mátt fara og gera þau mál upp um leið og við verðum að halda fram því sem vel hefur verið gert. Framsóknarflokkurinn hefur átt í vök að verjast. Fyrir því eru margar ástæður. Að hluta til er því um að kenna að flokkurinn hefur verið of linur í samvinnu við aðra flokka og ekki haldið nægilega fram sinni stefnu og stefnumálum. Flokkurinn með sína glæsilegu fortíð hefur á tímum hugsað og hagað sér eins og smáflokkur, ekki þorað að hugsa nægilega stórt. Ég tel líka að hluti af vanda Framsóknarflokksins sé að hann hefur ekki náð að endurnýja sig, hleypa nýrri kynslóð að ákvarðanatökunni en ég vil tryggja að svo verði nú. Ég er þeirrar skoðunar að flokkar eigi að vera fyrir fólk. Endurnýjaður Framsóknarflokkur þarf að hugsa um fólkið og fyrirtækin í landinu - en umfram allt fólk. Fólk í fyrirrúmi. Sæunn Stefánsdóttir, ritari Framsóknarflokksins
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira