Bílablaðamennirnir ánægðir með rysjótt veðrið 15. september 2008 14:17 Sýningarskálinn í Bláfjöllum er glæsilegur.
Kynning á nýjustu kynslóð af Volkswagen Golf sem fram fer hér á landi þessa dagana hefur gengið vonum framar, þrátt fyrir rysjótt veður. Jón Trausti Ólafsson, markaðs- og kynningastjóri hjá Heklu segir að kynningin hafi vakið mikla lukku, jafnt hjá blaðamönnum sem og forsvarsmönnum Volksvagen. „Við höfum fengið mjög góð viðbrögð bæði frá Volkswagen sem eru með um 200 starfsmenn hér vegna verkefnisins og frá blaðamönnunum sjálfum," segir Jón Trausti og bætir við að veðrið hafi til þessa sett nokkuð strik í reikninginn. „Við hjá Heklu óttuðumst að menn yrðu fyrir vonbrigðum með veðrið sem hefur gengið yfir en það hefur hins vegar bara lagst vel í menn og þeim þykir algjört ævintýri að keyra við svona aðstæður og eru mjög ánægðir." Kynningin stendur í þrjár vikur og lýkur henni í lok september. Hátt í 200 manns eru staddir hér á landi á vegum Volkswagen auk þess sem um 1500 blaðamenn munu hafa komið hingað til þess að reynsluaka nýjum Golf áður en yfir lýkur. „Á hverjum degi koma hingað hátt í hundrað blaðamenn, þeir koma á hádegi fara í reynsluaksturinn upp í Bláfjöllum og eru síðan farnir daginn eftir," segir Jón Trausti en glæsilegur skáli hefur verið reistur í Bláfjöllum í tilefni kynningarinnar. Martin Winterkorn, stjórnarformaður Volkswagen samsteypunnar, kom hingað til lands í síðustu viku og var mjög ánægður með hvernig til hefur tekis að sögn Jóns Trausta. Jón Trausti segir að ekki hafi verið rætt um fleiri verkefni af svipuðum toga í framtíðinni. „Þetta stendur út september og það liggja ekki fyrir önnur verkefni en það liggur alveg fyrir að sú umfjöllun sem Ísland hefur fengið í tengslum við kynninguna mun án efa vekja áhuga fleiri á landinu," segir Jón Trausti og bendir á að umfjallanir blaðamannana sem þegar eru teknar að birtast víða um heim snúi að miklu leyti um Ísland ekki síður en sjálfan bílinn.
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Bíó og sjónvarp Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira