Miklar líkur á seinkun á framleiðsluaukningu í Straumsvík 10. nóvember 2008 16:21 MYND/GVA
Miklar líkur eru á því að seinkun á útboðum í Búðarhálsvirkjun valdi því að seinkun verði á aukinni framleiðslu í álveri Alcan í Straumsvík að mati Össurar Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra. Rósa Guðbjartsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, vakti athygli á frétt Fréttablaðsins af því að Landsvirkjun hefði seinkað útboðum sínum vegna Búðarhálsvirkjunar fram í mars en til stóð að bjóða byggingu virkjunarinnar út í haust. Rósa lýsti yfir vonbrigðum með þetta og benti jafnframt á að forsvarsmenn álvers Alcan í Straumsvík hygðust kaupa hluta orkunnar frá Búðarhálsvirkjun og auka framleiðslugetu sína um 40 þúsund tonn. Spurði hún ráðherra hvort frestun á útboðum Landsvirkjunar hefði áhrif á framkvæmdir Alcan og hvernig ráðherra sæi fyrir sér að álverið fengi næga orku til framleiðsluaukningar. Össur Skarphéðinsson sagði að erfitt væri fyrir fyrirtæki, jafnvel sterk eins og Landsvirkjun, að fá lánsfé í núverandi kreppu. Hann sagðist þó vænta þess að veðrinu slotaði fyrr en marga grunaði. Framkvæmdirnar við Búðarhálsvirkjun hefðu átt að kosta 23-25 milljarða og virkjunin að færa 85 megavött. Þetta hefði verið talin forsenda þess að auka framleiðslu hjá Alcan og sagðist hann í hreinskilni telja að það væru miklar líkur á að seinkun útboða vegna Búðarhálsvirkjunar þýddi samsvarandi seinkun á framleiðsluaukningu Alcan. Hér væri þó aðeins um seinkun að ræða en ekki yrði hætt við framkvæmdirnar. Þá benti hann á að verið væri að kanna hvort tilboðsgjafar hjá Landsvirkjun gætu lagt hönd á plóginn til fjármögnunar verkefninu en fyrir slíku væru fordæmi.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Sjá meira