Segir Geir taka skell fyrir ríkisstjórnina 16. júlí 2008 13:30 Katrín Júlíusdóttir
Katrín Júlíusdóttir þingmaður Samfylkingar segir niðurstöður úr skoðanakönnun fréttastofu stöðvar 2 frá því í gærkvöldi koma sér nokkuð á óvart. Niðurstöður könnunarinnar sem Capacent Gallup framkvæmdi fyrir fréttastofuna sýna að 47% svarenda treysta Geir Haarde ekki til þess að leiða Ísland út úr þeirri kreppu sem nú stendur yfir. „Það er samt auðvitað ekki auðvelt að vera oddviti ríkisstjórnarinnar við þær aðstæður sem nú ríkja í efnahagslífinu. Fólk er með miklar væntingar og orðið langþreytt eftir áþreifanlegum aðgerðum," segir Katrín sem fagnaði mjög yfirlýsingum Geirs í Markaðnum í gærkvöldi. „Hann lýsti því yfir í gær að þessar lausnir eiga eftir að koma og auðvitað tekur þetta allt sinn tíma, það duga engar skyndilausnir í svona ástandi," segir Katrín sem telur að slæm útkoma Geirs tengist því að hann sé oddviti ríkisstjórnarinnar. „Auðvitað er hann að taka einhvern skell við svona aðstæður, alveg óháð því hvort hann eigi það skilið eða ekki. Hann er ekki í öfundsverðri stöðu." Katrín telur ekki líklegt að þessar niðurstöður hafi áhrif á traust Samfylkingarfólks gagnvart Geir. „Nei alls ekki. Hann hefur reynst góður leiðtogi fyrir hópinn og það er gott að vinna með honum." Aðspurð hvort hún telji skynsamlegt að Geir stigi til hliðar og einhver annar kæmi inn í hans stað segir Katrín það ekki koma til greina. „Ég hef aldrei verið fylgjandi því að skipta um hest í miðri á, og hvað þá við þessar aðstæður. Það er heldur enginn sem ég sæi koma inn í hans stað."
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira