Bjargráðasjóður lagður niður 17. apríl 2008 22:09
Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um að Bjargráðasjóður verði lagður niður. Um leið á að skipta eignum hans á milli eigenda, sem eru ríkið, sveitarfélögin og Bændasamtök Íslands. Sjóðurinn á sér nærri hundrað ára sögu og var komið á fót í þeim tilgangi að koma til hjálpar landsmönnum í hallæri eða til að afstýra því. Í byrjun síðustu aldar þegar sjóðurinn var stofnaður gátu búfjárfellir og önnur áföll í landbúnaði haft í för með sér mjög alvarlegar afleiðingar fyrir íbúa sveitarfélaganna. Var stjórn sjóðsins m.a. falið það hlutverk að hafa vakandi auga á öllum hallærishættum og veita landsstjórninni lið til allra framkvæmda sem miðuðu að því að afstýra hallæri. Hin síðari ár hefur Bjargráðasjóður skipst í tvær deildir, almenna deild og búnaðardeild. Hlutverk almennu deildar sjóðsins er að veita einstaklingum, félögum og sveitarfélögum fjárhagsaðstoð til að bæta meiri háttar bein tjón af völdum náttúruhamfara en búnaðardeild bætir tjón á búfé og afurðum búfjár og uppskerutjón á garðávöxtum. Hlutverk sjóðsins hefur hins vegar minnkað með aukinni tryggingavernd. Nettóeign Bjargráðasjóðs í árslok 2007 var samkvæmt ársreikningi tæpar 660 milljónir og koma því um 220 milljónir í hlut hvers eiganda. Miðað er við að uppgjöri sjóðsins verði lokið fyrir árslok 2008.
Mest lesið Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Erlent Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Erlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Fleiri fréttir Astró og Bix í góðu lagi en Norðquist hafnað Skotíþróttamenn langeygir eftir starfsleyfi Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Bein útsending: Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Sjá meira