Reyndu að svíkja fé út af kortareikningi konu 17. apríl 2008 17:17 MYND/Vilhelm
Óprúttnir aðilar reyndu að svíkja fé út af kortareikningi konu í Árnessýslu í gær að sögn lögreglunnar á Selfossi. Um kvöldmatarleytið fékk hún símtal frá konu sem talaði mjög skýra ensku.„Sú sem hringdi skýrði þeirri sem svaraði að hún hefði unnið ferðalag og tilgreindi áfangastað og gaf upp trúverðugar vísbendingar um hvernig konan gæti kynnt sér það sem þetta snérist allt um. Að því loknu hljómaði karlmannsrödd í símanum, einnig á skýrri ensku. Hann þuldi upp uplýsingar um konuna heimili og síma og spurði hvort það væri rétt. Konan staðfesti þetta. Þá las hann upp fjórar síðustu tölur í kortanúmeri og spurði hvort það væri ekki réttar tölur í Masterkorti hennar. Hún staðfesti að svo væri. Þá bað karlmaðurinn hana um að lesa upp kortanúmerið til að staðfesta hvort þeir væru með réttar upplýsingar. Konan las upp kortanúmerið. Að því loknu kom þriðji aðili inni í símtalið og sá talaði líka ensku. Sá lét konuna vita að samtalið væri hljóðritað," segir í tilkynningu lögreglunnar.Að þessu loknu spurði maðurinn konuna hvort hún hefði ekki alveg skilið það sem áður var sagt við hana og skýrði fyrir henni að vinningurinn væri fólginn í niðurgreiðslu á ferð og að hennar hlutur væri 989 dollarar sem yrðu teknir af kortareikningi hennar. Þar með lauk símtalinu.Strax að því loknu áttaði konan sig á því að hér væri um svik að ræða og lét loka kortinu sínu. Af þessu þykir ljóst að óprútnir aðilar hafi á þennan hátt ætlað að svíkja fé út af reikningi konunnar. Lögregla segir að hugsanlegt sé að þeir hafi komist yfir kortakvittun konunnar. „Fólk sem fær símhringingar með tilkynningar um að það hafi unnið í einhvers konar happdrættum ætti að hafa allan varan á," segir lögregla.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Sjá meira