Vilja endurskoðun laga um öryggisþjónustu 17. apríl 2008 10:34 Öryggisvörður að störfum. MYND/VALLI
Árásir á öryggisverði að undanförnu kalla á að sá lagarammi sem öryggisfyrirtæki starfa eftir sé tekinn til gagngerrar endurskoðunar að mati Öryggismiðstöðvarinnar. „Það hafa komið fram raddir um auknar heimildir öryggisvarða til að bera varnarbúnað eins og handjárn og piparúða, en sú umræða er að okkar mati óviðeigandi við núverandi aðstæður," segir Ómar Örn Jónsson hjá Öryggismiðstöðinni. Áður en til slíkrar umræðu getur komið verðum við að fara yfir hvaða lagalegu kröfur eru gerðar til öryggisvarða og öryggisfyrirtækja. Lagaramminn er mjög opinn í dag og í raun ekkert sem hindrar að kalla megi óþjálfaða starfsmenn öryggisverði. Við slíkar aðstæður er útilokað að rýmka heimildir öryggisvarða til að bera varnarbúnað að sögn Ómars. Jafnframt sé samkeppnisumhverfi þeirra öryggisfyrirtækja sem leggja metnað í öfluga þjálfun öryggisvarða gert erfiðara fyrir við þessar aðstæður. Nágrannalöndin langt á undan Ómar bendir á að rétt sé að horfa til nágrannalanda okkar í þessum efnum. „Þau eru komin langt á undan okkur hvað varðar löggjöfina og t.d. má nefna að öryggisverðir í Danmörku bera oft á tíðum handjárn og annan varnarbúnað. Í ákveðnum tilvikum er þeim heimilt að handtaka fólk og jafnvel leita á þvi ef svo ber undir. Öryggisverðir þar í landi starfa eftir skýrum lagaákvæðum sem gefa nákvæmar leiðbeiningar um hvenær má grípa til slíkra ráðstafana. Til að öðlast starfsleyfi sem öryggisvörður þar í landi þarf að sækja og standast próf á sérstöku námskeiði fyrir öryggisverði, sem er viðurkennt af opinberum aðilum. Námskeiðið tekur m.a. á sjálfsvörn, öryggisleit, handtökum, lögum og reglugerðum, skýrslugerð, fjarskiptum, brunavörnum, skyndihjálp, framkomu, verndun vettvangs og sönnungargagna og stjórnun á vettvangi," segir Ómar og bætir við að samhliða endurskoðun lagaákvæða þurfi að auka enn frekar samráð öryggisfyrirtækja og lögreglu.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Innlent Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Erlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Maðurinn fundinn Innlent Fleiri fréttir Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Sjá meira