Fjárlaganefnd brýnir niðurskurðarhnífinn 26. nóvember 2008 19:00
Fjárlaganefnd Alþingis bíður nú eftir skilaboðum ríkisstjórnar um hversu stórfelldan niðurskurð þurfi á ríkisrekstrinum til að grynnka á hrikalegum hallarekstri. Á sama tíma er biðstofa nefndarinnar þéttsetin af fulltrúum stofnana og samtaka að biðja um meiri pening.Á hverjum morgni bíða talsmenn hinna ýmsu stofnana og félaga eftir áheyrn fjárlaganefndar Alþingis. Ásóknin er svo mikil að nefndin hefur skipt sér í þrennt til að hafa undan við að hlusta á rök fyrir nauðsyn framlaga í hin ólíkustu verkefni, eins og hér um könnun á hagkvæmni léttlesta. Annar hluti þingnefndarinnar hlýddi á sama tíma á ósk um framlög til líknarfélags. Hætt er við að flestir fái þvert nei því fjármálaráðherra hefur sent út þau tilmæli að engin ný verkefni skuli samþykkt og önnur skorin niður um tíu prósent.Jón Bjarnason, fulltrúi vinstri grænna í fjárlaganefnd, segir ótækt að fara í slíkan flatan niðurskurð. Það verði verkefni fjárlaganefndar að forgangsraða. Velferðarkerfið, menntunin, heilbrigðiskerfið og atvinnuskapandi verkefni, þetta þarf að verja, segir Jón. Formaður fjárlaganefndar, Gunnar Svavarsson, er sama sinnis, og telur það ekki óskhyggju að standa vörð um þessa málaflokka. Það sé vilji þingsins og þjóðarinnar.Það er vitað að hallinn stefnir yfir hundrað milljarða króna, sumir telja hann fara yfir 150 milljarða. Þessa tölu þarf fjárlaganefndin að fá á hreint með væntanlegri þjóðhagssá, svo menn viti hversu harkalega þurfi að stíga á bremsuna. Hversu stórt sem fjárlagagatið verður þá blasa við sársaukafullar aðgerðir að brúa það, jafnt skattahækkanir sem niðurskurður, - aðgerðir sem gætu reynt verulega á stjórnarsamstarfið.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira