Gylfi Arnbjörnsson býður sig fram til forseta ASÍ 11. september 2008 12:50 Gylfi Arnbjörnsson.
Gylfi Arnbjörnsson framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, hefur ákveðið að gefa kost á sér sem forseti sambandsins en kosið verður um embættið í október. „Eftir að hafa leitað í baklandið og viðrað þessa hugmynd þá finnst mér ég fá það mikinn stuðning við hana að ég hef ákveðið að bjóða mig fram," segir Gylfi í samtali við Vísi. Gylfi segist ekki búast við stórtækum breytingum á starfi ASÍ, nái hann kjöri. „Stefna samtakannna og starfið mótast mjög mikið af forystusveitinni, formönnum sambanda og stærstu félaga og miðstjórn ASÍ. Ég á því ekki von á því að það verði einhver stökkbreyting við þessi tíðindi því þetta hefur verið þéttur hópur sem hefur unnið saman undanfarin ár." „En í daglegu starfi og samskiptum er auðvitað mannamunur á vinnulagi og auðvitað fylgir nýjum forseta, hver sem það nú verður, eitthvað nýtt og öðruvísi vinnulag," segir hann. Að sögn Gylfa eru það efnahagsmálin og þær blikur sem nú eru á lofti í landinu sem eiga hug hans allan. „Við erum auðvitað á kafi í mjög umfangsmiklu verkefni sem að snýr að þessum efnahagsmálum og erum að reyna að finna leiðir út úr því. Það á því á hug manns þessi misserin að sinna því, bæði að finna leiðir til að komast út úr þessari stöðu en ekki síður að eiga samskipti við okkar bakland og viðra þær hugmyndir og fá viðbrögð við því hvað hægt sé að gera." Gylfi segir að þetta sé stórt verkefni og mikilvægt „og ég býst nú við því að verða uppteknari af því heldur en þessu framboði á næstunni. Framboðið er síðan bara eitthvað sem ársfundur tekur afstöðu til þegar þar að kemur, þann 23 október," segir Gylfi Arnbjörnsson.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Sjá meira