Ekkert í svörum ESA sem gerir kröfu um aðskilnað lána hjá Íbúðalánasjóði 11. september 2008 11:55 MYND/GVA
Í svörum Eftirlitsstofnunar EFTA við fyrirspurnum Árna Þórs Sigurðssonar, þingmanns Vinstri - grænna, er ekkert að finna sem gerir kröfu um að Íbúðalánasjóður aðskilji félagsleg og almenn lán. Þetta fullyrti þingmaðurinn á Alþingi í dag. Formaður félags- og tryggingamálanefndar segir engar stórbreytingar á sjóðnum í pípunum. Það var Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem vakti athygli á málefnum Íbúðalánasjóðs á Alþingi. Hann sagði mikilvægt að búa við sterkan Íbúðalánasjóð því hann væri í dag eini aðilinn á húsnæðismarkaði, væri rekinn án arðssemissjónarmiða og byði langlægstu vextina. Sagði hann framsóknarmenn vilja standa vörð um sjóðinn en ríkisstjórnarflokkarnir töluðu kross varðandi hann. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hefðu sagt að breyta ætti sjóðnum í heildsölubanka en ráðherrar Samfylkingar hefðu sagt að ekkert slíkt stæði til. Sagði hann þetta með öllu óásættanlegt og spurði Guðbjart Hannesson, formann félags- og tryggingamálanefndar, hvort hann teldi koma til greina að það væri hluti af svokallaðri þjóðarsátt að Íbúðalánasjóður hyrfi af húsnæðismarkaði líkt og Samtök atvinnulífsins hefðu lagt til. Ekki neinar stórbreytingar á sjóðnum Guðbjartur Hannesson sagðist ekki hafa heyrt neinar útgáfur af málinu aðrar en þær að koma ætti til móts við álit Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, um að skilið yrði á milli félagslegra og almennra lána hjá Íbúðalánasjóði. Sagðist Guðbjartur telja að mikilvægt væri að verja sjóðinn og að ekki væru áætlaðar neinar stórbreytingar á sjóðnum. Þá sagði hann að það væri óráðlegt að fara eftir hugmyndum Samtaka atvinnulífsins í málinu. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri - grænna, sagði málefni Íbúðalánasjóðs varða hverja einustu fjölskyldu í landinu og að það væri hluti af velferðarkerfinu hér á landinu að geta komið sér þaki hyfir höfuðið. Sagðist hann hafa í tvígang spurt forsvarsmenn ESA út í álit stofnunarinnar um Íbúðalánasjóð en ekkert í þeirra svörum benti til þess að eftirlitsstofnunin gerði kröfu um aðskilnað félagslegra og almennra lána. Þá sagði Árni að ekkert kæmi í veg fyrir að íslensk stjórnvöld skilgreindu öll íbúðalán sem félagsleg gagnvart ESA. Íbúðalánasjóðir þjóðnýttir vestan hafs Fleiri þingmenn stjórnarandstöðunnar tóku til máls og benti Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri - grænna, á það hvernig farið hefði fyrir íbúðalánasjóðum á bandarískum markaði. Réttast væri að senda forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins vestur um haf til þess að kynna sér hvernig þar hefði farið eftir að íbúðalánasjóðir fóru á hlutabréfamarkað. Tveir sjóðir hefðu nýverið verið þjóðnýttir þar í landi og staðan á fasteignamarkaði mjög erfið. Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, sagði að ekki ætti að breyta Íbúðalánasjóði og það giltu almennar og gengsæjar reglur um hann sem næðu til allra í landinu. Kerfið stæði undir sér og væri ekki íþyngjandi fyrir ríkissjóð og væri það ódýrasta til þess að tryggja öllum lán.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Innlent Fleiri fréttir „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Sjá meira