Aldraðir fá inni í Heilsuverndarstöðinni 13. febrúar 2008 16:24 Frá undirritun samningsins í dag.
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og María Ólafsdóttir, yfirlæknir eignarhaldsfélagsins Heilsuverndarstöðvarinnar, skrifuðu í dag undir samning um rekstur 20 skammtímahvíldarrýma fyrir aldraða skjólstæðinga heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu og 30 dagvistarrýma þar sem áhersla verður lögð á endurhæfingu. Þetta kemur fram á vef heilbrigðsráðuneytisins. Þar segir einnig að um tilraunaverkefni til hálfs árs sé að ræða og er gert ráð fyrir að starfsemin hefjist í húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg í marsbyrjun. Þá verður á samningstímanum unnið að útboði á grundvelli þeirra upplýsinga sem fást af verkefninu. Rétt á þjónustu Heilsuverndarstöðvarinnar eiga aldraðir sem að mati heimahjúkrunar þurfa tímabundna vistun vegna dægurvillu, til að hvíla umönnunaraðila, vegna skyndilegra veikinda eða ef sá sem annast viðkomandi forfallast skyndilega. Boðið upp á sveigjanlegan vistunarmöguleika í hvíldarrýmum með vistun frá einum sólarhing í allt að fjórar vikur.Samningurinn gerir enn fremur ráð fyrir að einstaklingar fái að vera í dagdvöl með endurhæfingu í tiltekinn tíma og að hámarki 8 vikur. Þjónusta fyrir dagdvöl með endurhæfingu verður opin frá klukkan átta á morgnana til sjö á kvöldin. Þannig verður einstaklingum boðið upp á að hefja dagdvöl árla morguns og fram undir hádegi. Þeim sem fara heim um klukkan sjö verður boðið upp á að snæða kvöldverð og að taka lyf sín áður en dagdvöl lýkur. Heimilt verður að hafa opið um helgar.Þjónustan var boðin út á vegum Ríkiskaupa sem þróunarverkefni. Eitt tilboð barst í þjónustuna, frá Heilsuverndarstöðinni.
Mest lesið Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Innlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Innlent Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Fleiri fréttir Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Guðrún vinsælli en Agnes og traust til kirkjunnar á uppleið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Björg býður ungliðum til fundar Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Sjá meira