Ekki fyrsti misskilningur Gísla og Ástu 13. febrúar 2008 12:25
Misskilningur leiddi til þess að kjósa þurfti tvisvar um varaformann í umhverfis og samgönguráð Reykjavíkur í gær. Sjálfstæðismenn töldu einn fulltrúa sinn tilheyra F-lista og að þess vegna ætti varaformaður nefndarinnar að koma úr röðum sjálfstæðismanna. Meirihlutinn í Reykjavík hafði samið um það að F-listi fengi varaformann í þeim nefndum sem aðeins einn fulltrúi F-lista sæti í nefnd. Á fundi umhverfis- og samgönguráðs í gær stakk Gísli Marteinn Baldursson, formaður nefndarinnar, upp á því að Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir í varaformannssætið. Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, stakk hins vegar uppá Ástu Þorleifsdóttur, F-lista, í sætið. Tillaga Gísla kom Ástu á óvart sem af þeim sökum kaus að sitja hjá við atkvæðagreiðsluna. Við það féllu atkvæði jöfn milli Ástu og Þorbjargar og ganga þurfti til kosninga að nýju. Samkvæmt heimildum fréttastofu þá bað Gísli Ástu um að eiga við sig orð sem að því loknu kaus Þorbjörgu sem varaformann. Í samtali við fréttastofu í morgun sagði Ásta kosninguna hafa byggst á þeim misskilningi sjálfstæðismanna að Helga Jóhannsdóttir, Sjálfstæðisflokki, er gift Ómari Ragnarssyni stofnanda Íslandshreyfingarinnar. Þar með töldu sjálfstæðismenn að Helga hlyti fylgja eiginmanni sínum að málum og vera fulltrúi F-lista en ekki sjálfstæðismanna og því ætti varaformannssætið að falla þeim í skaut. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að leiðrétta þetta, annaðhvort með því að víkja Helgu úr nefndinni og fá inn mann frá F-lista eða með því að kjósa nýjan varaformann. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem misskilnings gætir milli Gísla Marteins og Ástu. Í tíð sjálfstæðismanna og Framsóknar í borgarstjórn var Ásta áheyrnarfulltrúi í umhverfisnefnd þegar nefndin fór í heimsókn til Seattle. Þá fékk Ásta ekki að fara með nefndinni út sem mun vera í fyrsta og eina skiptið sem áheyrnarfulltrúa er meinuð þátttaka í slíkri ferð.
Mest lesið Féll í Jökulsárlón Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Innlent Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Fleiri fréttir Fara í aðgerðir fáist ekki svör Handtekinn vegna stunguárásarinnar Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Skjálftahrina við Eldey Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Sjá meira
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent