Hringdi af stöðinni og seig niður í reipi 16. febrúar 2008 09:00 Annþór Kristján Karlsson strauk á ævintýralegan hátt úr fangageymslum lögreglunnar í gærmorgun.
Annþór Kristján Karlsson fékk að hringja á lögreglustöðinni við Hverfisgötu daginn áður en hann strauk, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Ekki liggur ljóst fyrir hversu oft hann fékk að nota símann, en hann kvaðst vera að ráðfæra sig við lögmann sinn. Þetta er eitt fjölmargra atriða sem farið verður yfir í rannsókn á tildrögum stroksins. Annþór strauk snemma í gærmorgun. Lögregla gerði mikla leit að Annþóri, sem stóð fram undir kvöld. Þá fannst hann í íbúðarhúsnæði í Mosfellsbæ, þar sem hann hafði falið sig inni í skáp. Að sögn Geirjóns Þórissonar yfirlögregluþjóns var Annþór í svokallaðri opinni gæslu í lögreglustöðinni. Í gærdag rann gæsluvarðhald hans út og átti hann þá að mæta fyrir héraðsdóm að nýju. Hann dvaldi í álmu sem ætluð er öðrum en þeim sem stungið er inn til að sofa úr sér. Í álmunni eru fimm klefar, gangur og lítil setustofa. Annþór var eini fanginn í álmunni. Geirjón segir að af einhverjum ástæðum sem ekki voru ljósar í gær hafi klefi Annþórs ekki verið læstur yfir nóttina. Annþór hafi verið á sínum stað við athugun um fimmleytið í fyrrinótt. Um sjöleytið hefði hins vegar uppgötvast að hann hefði strokið. Hann hefði brotið rúðu úr öryggisplexigleri á ganginum og látið sig síga niður í kaðli. Spurður hvar hann hefði fengið kaðalinn sagði Geirjón að hann hefði komist inn í geymslu í álmunni. „Þar fann hann smá kaðalspotta sem hann hefur náð að láta sig síga niður í," segir Geirjón og bætir við að ekki sé vitað hvernig Annþór komst inn í geymsluna. Tveir menn voru í gær handteknir á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn lögreglunnar á flótta Annþórs. Þeir eru grunaðir um að hafa aðstoðað hann. Lögregla gerði húsleit á fjölmörgum stöðum í leit sinni að Annþóri áður en hann fannst. Það voru lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum, svo og tollverðir og sérsveit Ríkislögreglustjóra sem stóðu að aðgerðunum til að finna og handtaka Annþór í gær.
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira