Ljósmæður boða verkföll í september 15. ágúst 2008 13:12
Ljósmæður samþykktu í atkvæðagreiðslu í vikunni að boða til verkfallsaðgerða í byrjun september til þess að knýja á um betri kjör. Fram kemur í tilkynningu frá Ljósmæðrafélagi Íslands að verkfallsaðgerðir hafi verið samþykktar með 98-99 prósentum greiddra atkvæða. Metþátttaka var í atkvæðagreiðslunni en yfir 90 prósent atkvæðabærra ljósmæðra tóku þátt. Verkföllin beinast gegn sjúkrahúsum, heilbrigðisstofnunum og heilsugæslustöðvum í rekstri ríkisins. Fyrsta verkfallið verður 4. og 5. september en síðan stigmagnast aðgerðirnar og þeim lýkur með allsherjarverkfalli 29. september. Treysta á að ríkisstjórn geri sér grein fyrir stöðunni Í tilkynningu ljósmæðra segir að stjórn LMFÍ leggi áherslu á að samningar náist áður en til aðgerðanna komi og treysti á að ríkisstjórn Íslands geri sér grein fyrir alvöru málsins og veiti viðsemjendum umboð til að ná árangri í viðræðum. „Ábyrgðin liggur hjá ríkinu, við höfum gripið til þess afarkosts sem verkfallsboðun er en kosningin sýnir okkur að ljósmæður standa af heilum hug að baki forystunnar og munu ekki una óbreyttu ástandi" segir Guðlaug Einarsdóttir, formaður félagsins. Ljósmæður ítreka að þær séu tilbúnar að ganga að samningi sem gerður var við félög innan BHM en vilja hins vegar fá menntun sína og störf metin í samræmi við aðra ríkisstarfsmenn með svipaða menntun. „Þessari kröfu hefur Ljósmæðrafélag Íslands haldið á lofti í mörg ár og eru ljósmæður því langþreyttar á ástandinu," segir í tilkynningunni. Næsti samningafundur í kjaradeilu LMFÍ og ríkisins er boðaður þann 26. ágúst.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fleiri fréttir Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Sjá meira