Samfylkingarráðherrar sagðir tala út og suður í loftrýmismáli 13. nóvember 2008 11:21 MYND/GVA
Ráðherrar Samfylkingarinnar voru sakaðir um að tala út og suður vegna fyrirhugaðrar komu breskra hersveita hingað til lands í desember til loftrýmiseftirlits. Í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag innti Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra eftir því hvort hann hygðist beita sé fyrir því að koma Bretanna yrði afþökkuð í ljósi þeirra deilna sem þjóðirnar ættu í. Vísaði Steingrímur til fyrri orða Össurar sem starfandi utanríkisráðherra um að það misbyði þjóðinni að fá Breta hingað til loftrýmiseftirlits við núverandi aðstæður. Benti Steingrímur enn fremur á að Ingibjörg Sólrún Gíslasóttir utanríkisráðherra hefði sagt í gær að Bretar myndu ráða því sjálfir hvort þeir kæmu hingað. Sagði Steingrímur að Össur hefði lýst sig andsnúinn komu Bretanna og skoraði hann á ráðherrann að beita sér fyrir því að koma þeirra yrði afþökkuð. Ég kyssi ekki vönd kvalara minna Össur svaraði því til að afstaða hans væri óbreytt og sagði hann skammarlegt hvernig Bretar kæmu fram við gamla vinaþjóð sem hefði aðstoðað þá meðal annars í síðari heimsstyrjöldinni. „Ég kyssi ekki vönd kvalara minna," sagði Össur enn fremur. Sagðist Össur hafa gert það sem hann hefði getað til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri en hann hefði jafnframt sagt að ef við næðum sátt við Breta kæmi upp önnur staða. Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, spurði í fyrirspurnartímanum hvað væri að gerast í Samfylkingunni. Hér væri verið að ræða um alvarlegt mál af mikilli léttuð. Sagði hún það óheppilegt að Bretar væru næstir í röð þeirra þjóða NATO sem myndu koma hingað til loftrýmiseftirlits og gagnrýndi hún Össur fyrir innihaldslausar yfirlýsingar. Enn fremur spurði hún hvort Ingibjörg Sólrún og Össur töluðu ekkert saman í ljósi misvísandi yfirlýsinga þeirra um komu breskra herþotna. Össur svaraði því til að hann hefði gert það sem honum bar þegar hann hefði verið starfandi utanríkisráðherra. Hann ítrekaði jafnframt að ef aðstæður breyttust og sátt næðist við Breta myndi afstaðan breytast. Sagði hann að honum væri sama hvað Framsóknarþingmenn segðu, hann hefði fylgt sannfæringu sinni öfugt við þá. Bætti hann því að sem iðnaðarráðherra og fyrrverandi starfandi utanríkisráðherra teldi hann að við sem fullgildir aðilar að NATO ættum að fara fram á það að tekið yrði tillit til stöðu okkar þegar verið væri að skipa hingað sveitum.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Fleiri fréttir „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegt tímabil klárast á dögunum Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Sjá meira