Innlent

Samgönguvika við Tjörnina

Fjölmargir tóku þátt í lokadegi Samgönguvikunnar við Tjörnina í miðborg Reykjavíkur í dag. Boðið var upp á hóphjólreið og spennandi hjólreiðakeppni.

Þetta er fimmta sinn sem evrópska samgönguvikan er haldin hátíðleg í Reykjavík. Markmiðið er að vekja almenning til umhugsunar um ferðavenjur sínar og nauðsyn þess að draga úr mengun af völdum bílaumferðar.

Um sextíu manns á öllum aldri tóku þátt í hóphjólreið að Ráðhúsi Reykjavíkur en lagt var af stað frá fimm mismunandi stöðum í höfuðborginni.

Þá öttu um tuttugu hjólreiðarmenn kappi í hinum svokallaða Tjarnarspretti en farnir voru fimmtán hringir í kringum Tjörnina. Sigurvegarinn var Hafteinn Ægir Geirsson, en þetta er í þriðja sinn sem hann vinnur keppnina á jafnmörgum árum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×