Innlent

Búið að úrskurða meinta kókaínsmyglara í gæsluvarðhald

Tveir karlar, annar á fertugsaldri og hinn um fertugt, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til miðvikudagsins 26. september.

Mennirnir eru grunaðir um innflutning á ætluðum fíkniefnum frá Suður-Ameríku. Talið er að um sé að ræða 1800 ml af kókaíni í fljótandi formi. Mennirnir, annar á fertugsaldri en hinn um fertugt, voru handteknir í Laugarneshverfi í Reykjavík síðdegis í gær.

Fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur stýrt rannsókn málsins sem unnin er í samvinnu við bandarísku fíkniefnalögregluna (DEA).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×