Innlent

Vilja aflétta trúnaði af upplýsingum um Gagnaveitu Reykjavíkur

Dagur B. Eggertsson vill ekki að almenningur sé leyndur upplýsingum um Gagnaveituna.
Dagur B. Eggertsson vill ekki að almenningur sé leyndur upplýsingum um Gagnaveituna. Mynd/ Stöð 2

Fulltrúar Samfylkingarinnar í stjórn og varastjórn Orkuveitu Reykjavíkur, þau Sigrún Elsa Smáradóttir og Dagur B Eggertsson, hafa farið fram á við forstjóra og stjórnarformann að leynd verði aflétt af niðurstöðu verðmats á Gagnaveitu Reykjavíkur þar sem upplýsingar um verðmatið hafi þegar birst í fjölmiðlum.

Þau segja í yfirlýsingu að úr því sem komið er fáist ekki séð að það skaði hagsmuni fyrirtækisins að stjórnarmenn geti óhindrað tjáð sig um verðmatið.

Alfreð Þorsteinsson sagði á Stöð 2 í gærkvöldi að nýjar upplýsingar um verðmæti Línu Nets afhjúpuðu óheiðarleika Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sem stjórnmálamanns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×