Innlent

Skipulagslög eru gölluð

Skipulagslög eru gölluð að mati formanns samtakanna Betri byggð á Kársnesi, sem telur að samráð við nágranna þurfi að koma mun fyrr inn en nú er.

Íbúasamtök hafa sprottið upp í ýmsum hverfum höfuðborgarsvæðisins á síðustu árum, einkum í tengslum við breytingar á skipulagi sem hleypt hafa illu blóði í íbúana. Sá hópur sem hvað mest hefur látið í sér heyra að undanförnu eru íbúar á Kársnesi sem hafa hvergi slegið af í andstöðu sinni við hugmyndir bæjaryfirvalda um stórskipahöfn á nesinu og gríðarlega fjölgun íbúa.

Í gær varð ljóst að andstaðan hafði skilað árangri þegar bæjarstjórinn tilkynnti að hætt væri við stækkun hafnarinnar og gengið yrði að óskum íbúa. Arna Harðadóttir, formaður íbúasamtakann Betri byggð á Kársnesi, segir ekki gert ráð fyrir raunverulegu samráði við íbúa í skipulagsferlinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×