Fleiri forgangsakreinar fyrir strætó og hjólagötur við stofnbrautir 16. september 2007 12:15 MYND/Pjetur
Borgarstjórnaflokkur Samfylkingarinnar vill ölfugri almenningssamgöngur með fleiri forgangsakreinum fyrir strætó á helstu stofnbrautum borgarinnar og sérstaka hjólagötur á sömu götum. Þá vill flokkurinn að fremur verði ráðist í Öskjuhlíðargöng en mislæg gatnamót á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Þetta kemur fram í ályktun frá borgarstjórnarflokknum í tilefni að því að samgönguvika borgarinnar hefst í dag. Í ályktun borgarstjórnarflokksins lýsir hann áhyggjum af þeirri óvissu sem ríki um stefnu Reykjavíkurborgar í samgöngumálum og segir hann sömuleiðis áhyggjuefni að þjónusta strætó hafi verið skorin stórlega niður síðastliðið ár. Almenningssamgöngur hafi aldrei verið fjær því að vera fullgildur samgöngumáti fyrir stóran hluta Reykvíkinga. Þá segir Samfylkingarfólk í borginni ánægjulegt að meirihluti borgarstjórnar hafi tekið upp stefnu fyrri meirihluta um að efla aðra ferðamáta en einkabílinn. Þvert á þetta sé þó enn rætt um þriggja hæða mislæg gatnamót á Miklubraut-Kringlumýrarbraut sem fyrir liggi að muni sáralitlu skila nema fjárútlátum, aukinni umferð og enn frekari umferðarstíflum á öllum næstu gatnamótum. Vill Samfylking fremur að ráðist verði í gerð Öskjuhlíðarganga til þess að dreifa umferðinni. Ályktun Samfylkingarinnar má sjá hér að neðan.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjá meira