Bræður setja svip sinn á Meistarann 26. febrúar 2007 09:30 Gísli Ásgeirsson er ekki búinn að ákveða sína hernaðartækni fyrir Meistarann. „
Þetta er skemmtiþáttur og menn verða að haga sér eftir því," segir Gísli Ásgeirsson, bróðir Páls Ásgeirs Ásgeirssonar sem sýndi vægast sagt stórskemmtileg tilþrif í síðasta Meistaraþætti. Páll Ásgeir lagði allt undir, sama hver staðan var og spennan var mögnuð í lokin þegar keppinautur hans, Svanborg Sigmarsdóttir, gat stolið sigrinum í síðustu spurningu eftir að Páll hafði leitt keppnina allan tímann. „Ég held að það toppi enginn þessa frammistöðu," bætir Gísli við. Páll Ásgeir sýndi stórskemmtileg tilþrif og lagði alltaf allt undir. Gísli verður sjálfur í Meistaranum á skírdag en sagðist ekki vita hvernig hann myndi haga sínum leik og taldi ótímabært að koma fram með einhverjar yfirlýsingar um hernaðartækni. „Aðrir hlutir eru mikilvægari um þessar mundir. Ég er ekki einu sinni búinn að ákveða í hverju ég á að vera en skjáþokki er jú mikilvægastur í þessu," bætir Gísli við. Logi Bergmann Eiðsson, spyrillinn góðkunni, sagðist aldrei hafa orðið vitni að öðru eins. „Ég verð að segja að ég hlakka til að fá Gísla í þáttinn enda eru þeir bræður miklir húmoristar," segir Logi og bætir því við að hann hafi verið ánægður með framkomu Páls. „Það var svona sem við lögðum þáttinn upp, að menn tækju áhættu." Logi hafði aldrei orðið vitni að öðru eins í Meistaranum. Páll Ásgeir var sjálfur hinn rólegasti og viðurkenndi að hann hefði lagt leik sinn svona upp. „Að taka allar áhættur sem í boði voru," segir Páll. „Mér skildist að þetta væri skemmtiþáttur og ákvað að leggja mitt á vogarskálarnar til að það gengi upp," bætir hann við. Páll undirbjó sig þó ekkert sérstaklega fyrir þáttinn heldur reyndi eftir fremsta megni að vera rólegur. „Stress getur byggt upp veggi fyrir minnið og ég reyndi að koma í veg fyrir það," útskýrir Páll sem taldi það ekki ákjósanlegt sjónvarpsefni ef þeir bræður myndu mætast. „Ég efast um að fólk myndi skilja húmorinn okkar."
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Fleiri fréttir Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Sjá meira