Sjálfstæðismenn hneykslaðir á vinnubrögðum Björns Inga 11. október 2007 15:49 Jón Kristinn Snæhólm. MYND/365
Sjálfstæðismenn eru furðu slegnir og hneykslaðir yfir vinnubrögðum Björns Inga Hrafnssonar, oddvita Framsóknarflokksins, að sögn Jóns Kristins Snæhólms, aðstoðarmanns borgarstjóra. Hann segir ákvörðun Björns Inga um að slíta meirihlutasamstarfinu hafa komið sjálfstæðismönnum í opna skjöldu. „Menn eru furðu lostnir yfir þessum vinnubrögðum og hneykslaðir," sagði Jón Kristinn Snæhólm, aðstoðarmaður Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra, í samtali við Vísi. „Að slíta samstarfi útaf ágreiningi um tímasetningu á sölu hlutabréfa eru ný tíðindi í íslenskri pólitík." Að sögn Jóns Kristins ræddust Björn Ingi og Vilhjálmur saman um klukkan hálf ellefu í gærkvöldi. Komust þeir þá að sameiginlegri niðurstöðu um að samstarf flokkanna í borgarstjórn myndi þola ágreininginn varðandi REI. Jón segir að Björn og Vilhjálmur hafi í kjölfarið ákveðið að hittast aftur á heimili borgarstjóra klukkan ellefu í morgun. Björn hafi hins vegar ekki mætt á þann fund. Þá hafi Björn átt að mæta á fyrirfram ákveðinn fund meirihlutans í Höfða en þar lét hann heldur ekki sjá sig. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hafi ekki náðst í Björn Inga fyrr en klukkan tvö í dag. Að sögn Jóns óskaði Björn þá eftir að funda með borgarstjóra. Á heimili borgarstjóra í Breiðholti hafi Björn svo tilkynnt Vilhjálmi að hann ætlaði sér að slíta samstarfinu. Jón segir klárt að Björn hafi kosið að fara í viðræður við minnihlutann þrátt fyrir það samkomulag sem hann gerði við borgarstjóra í gær. „Þetta er afskaplega sorglegt," sagði Jón. Að sögn Jóns ætlar borgarstjóri að boða til blaðamannfundar á heimili sínu seinna í dag. Hann segir að Vilhjálmur muni áfram starfa í borgarstjórn sem oddviti Sjálfstæðisflokksins.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira