Árangur á alþjóðlegum orkumarkaði ekki gefinn 11. október 2007 12:30
Sameinað fyrirtæki Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy býr að sérþekkingu Íslendinga á sviði jarðvarma og endurnýtanlegrar orku. Það þýði þó ekki að árangur í sölu á alþjóðlegum markaði sé gefinn. Þetta segir bandarískur sérfræðingur um samkeppni á alþjóðlegum orkumarkaði. Kenneth P. Morse er framkvæmdastjóri frumkvöðlaseturs MIT-háskóla í Bandaríkjunum og sérfróður um alþjóðlegum orkumarkaði. Hann kom hingað til lands vegna ráðstefnu Innovit, nýsköpunar og frukvöðlaseturs, og til að skrifa undir samning um frumkvöðlakeppni íslenskra háskólanema sem verður haldin að fyrirmynd sams konar keppni við MIT. Kenneth P. Morse segir allt sem tengist endurnýjanlegir orku vekja áhuga í dag og vinsældir málaflokksins miklar. Mörg hundruð prófessorar og nemendur helgi sig þessu málaflokki í MIT. Þar sé hægt að sitja rúmlega tuttugu námskeið tengd orkumálum á hverri önn - þar á meðal vinsælt námskeið um hvernig skuli stofna og reka fyrirtæki í þessum geira. Fyrir þennan vetur hafi 85 nemendur sóttst eftir fimmtán lausum plássum í því námi. Hann segir vel þekkt að Íslendingar hafi lengi nýtt jarðvarma og hafi mikla þekkingu á þessum geira. Margir eigi því eftir að koma hingað á næstu misserum til að reyna að læra allt sem Íslendingar viti fyrir ekki neitt. Morse óskar nýju sameinuðu fyrirtæki Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy velfarnaðar en segir langt þar til markaður með endurnýjanlega orku þróist og samkeppnin á honum sé nú og verði áfram mjög mikil. Það sem ráði úrslitum fyrir REI verði sölumennska - það sé eitt að hafa mikla þekkingu á þessu sviði en annað að selja hana.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Sjá meira