Lögreglan fylgist með veitingastöðum en vissi ekki af einkadansi 4. október 2007 15:24 Stefán Eiríksson, lögreglustjóri.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu heldur úti skipulögðu eftirliti með veitingastöðum á höfuðborgarsvæðinu en embættið eltir ekki fréttir fjölmiðla. Þetta segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri í samtali við Vísi þegar hann er spurður út í frétt Vísis þess efnis að einkadans sé enn stundaður á nektarstaðnum Goldfinger í Kópavogi þrátt fyrir að blátt bann liggi við því. Stefán vildi ekki tjá sig um hvernig eftirliti með einstaka stöðum væri háttað og hann vildi ekkert segja um frétt Vísis frá því fyrr í dag. „Við höfum eftirlit með starfsemi veitingahúsa á höfuðborgarsvæðinu og við höfum gripið til aðgerða þegar starfsemin fer í bága við lög og reglur eins og fram hefur komið í fjölmiðlum." Að sögn Stefáns eru mál annara nektarstaða á höfuðborgarsvæðinu í ákveðnu umsóknarferli og þar má því dansa nektardans enn sem komið er. Hann tekur þó fram að einkadans sé bannaður í landinu öllu. Aðspurður hvort lögreglan ætli að bregðast við fréttum Vísis í dag af einkadansi á Goldfinger sagðist Stefán ekki vilja svara því. „Við byggjum þessa vinnu okkar ekki á upplýsingum úr fjölmiðlum," segir Stefán Eiríksson.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira