Innlent

Tveir Litháar til viðbótar í gæsluvarðhald

MYND/GVA

Lögreglan hefur farið fram á að tveir af þeim sjö Litháum sem handteknir voru í gær fyrir stórfellda skipulagða þjófnaði víða um borgina verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Fjórir hafa verið dæmdir í farbann og einum hefur verið sleppt.

Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn segir rannsókn málsins enn í fullum gangi. Nú sitja níu Litháar í gæsluvarðhaldi og fjórir eru í farbanni en Ómar vildi ekkert tjá sig um hvort von væri á fleiri handtökum.

Þar sem allir gæsluvarðhaldsklefar landsins eru fullir má líklegt telja að Litháarnir tveir verði vistaðir í fangageymslum lögreglunnar á Hverfisgötu.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×