Rýmka ráðningarreglur eldri borgara vegna manneklu 4. október 2007 11:41 MYND/GVA
Samþykkt var í borgarráði í dag tillaga borgarstjóra um að Reykjavíkurborg verði heimilt að ráða 70 ára og eldri til starfa í minnst þriðjungs starfshlutfall í eitt ár í senn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. Með þessu vilja borgaryfirvöld meðal annars reyna að ráða bót á manneklu í ummönunarstörfum á vegum borgarinnar, en eins og fram hefur komið vantar um 150 starfsmenn á leikskóla borgarinnar og þá vantar sömuleiðist töluverðan fjölda á frístundaheimilin. Skilyrði fyrir ráðningu er að í hvert sinn liggi fyrir svokallað starfshæfnisvottorð til staðfestingar á hæfni viðkomandi til starfa.Með samkomulagi eldra fólks við sinn yfirmann verður því heimilt að vinna á mismunandi tímum dags, viku, mánaðar eða árs. Tveimur einstaklingum, hjónum eða vinum er heimilt að sinna vinnuskyldu eins starfsmanns. Hafi eldri starfsmaður en 65 ára starfað lengur en 10 ár hjá Reykjavíkurborg má draga úr vinnuskyldu hans um 20 prósent án þess að mánaðarlaun hans skerðist til 70 ára aldurs.Heimildin nær hins vegar ekki til lífeyrisþega sem þiggja lífeyri úr B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins eða Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga enda er það óheimilt samkvæmt reglum þessara sjóða eftir því sem segir í tilkynningu borgarinnar.Samkvæmt eldri reglum borgarinnar var yfirmanni heimilt að endurráða starfsmenn eldri en 70 ára eftir að þeir höfðu látið af föstu starfi innan Reykjavíkurborgar í annað eða sama starf í lægra en helmings starfshlutfall án skerðingar lífeyris. Slík endurráðning gilti til 72 ára aldurs. Því er hér um rýmkun á réttindum eldri starfsmanna til vinnu hjá Reykjavíkurborg.Ráðinn hefur verið verkefnisstjóri úr röðum eldri borgara til þess að finna eldri borgara sem hafa áhuga á lausum störfum innan leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila og heimaþjónustu borgarinnar. Farið verður yfir starfslýsingar og starfsaðstæður á áðurnefndum vinnustöðum með hag eldri borgara í huga.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira