Innlent

Tryggingar hækka langt umfram neysluverðsvísitölu

VÍS er eitt þriggja stóru tryggingafélaganna.
VÍS er eitt þriggja stóru tryggingafélaganna.

Verð á tryggingum hefur hækkað langt umfram vísitölu neysluverðs á undanförnum tveimur árum, eða um tæp 30 prósnet, en vísitalan um tæp ellefu prósent.

Í samantekt Morgunblaðsins um málið er bent á að stóru tryggingafélögin þrjú, séu nú öll komin í eigu svonefndra fjárfestingafélaga, sem hafi stofnað til mikilla skulda við kaup á félögunum.

Þá segir að það hafi verið fullyrt að samfara breytingum á eignarhaldi og auknum kröfum um arðsemi hafi orðið um það þegjandi samkomulag á milli tryggingafélaganna að slíðra að mestu sverðin í verðsamkeppni og einbeita sér í staðinn að því, að ná meiru út úr rekstrinum.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×