Yngsti klerkur landsins 25. febrúar 2007 16:00 Fékk áhuga á prestsskap þegar hann tók þátt í æskulýðsstarfi kirkjunnar í Vestmannaeyjum þegar hann var peyi. Fréttablaðið/Anton
Það verður stór stund í lífi Ólafs Jóhanns Borgþórssonar þegar hann verður vígður til prests. Auk þess markar vígsl-an önnur tímamót, því Ólafur Jóhann er aðeins á 26. aldursári og verður því yngsti prestur landsins. „Ekki þó frá upphafi,“ áréttar hann. „En þetta er sannarlega skemmtilegt þótt það sé auðvitað aukaatriði í sjálfu sér.“ Ólafur er Eyjapeyi og ákvað það fyrir margt löngu að gerast prestur. „Ég ákvað það þegar ég var í 8. bekk og hef haldið nokkuð fast í það síðan. Það verður því ekki síst skemmtilegt að fá brauðið í ljósi þess að ég hef stefnt að þessu lengi.“ Þótt Ólafur Jóhann hafi lengi haft áhuga á trúmálum er hann ekki kominn af mikilli prestaætt. „Ég á einn fjarskyldan ættingja sem er prestur. Áhugi minn á starfinu kviknaði þegar ég var ungur og starfaði mikið í æskulýðsstarfi kirkjunnar í Vestmannaeyjum. Þar fylgdist maður með starfi prestanna og því sem fylgdi, þar á meðal að taka þátt í stærstu stundum í lífi fólks. Prestar vinna að góðum hlutum og auðvitað á trúin ríkan þátt í þessu; að boða hinn æðsta boðskap er skemmtilegt og krefjandi verkefni sem mig langar að taka þátt í.“ Ólafur Jóhann verður vígður til Seljakirkju og stígur því sín fyrstu skref í prestsskap í Reykjavík og líkar það vel. „Ég er mikill landsbyggðarmaður í hjarta mér og vissulega væri spennandi að fara út á land, en hér í borginni er líka nóg af fólki. Ég hef starfað í Seljakirkju í hartnær tvö ár, sinnt æskulýðsstarfi og fleiru, og kann vel við mig í þessari sókn.“ Ólafur býst við að halda upp á daginn með fjölskyldu sinni. „Við eigum sjálfsagt eftir að gera eitthvað skemmtilegt saman. Ég hlakka mikið til, þetta verður ábyggilega góður dagur og það er mikið og spennandi starf fram undan.“
Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Menning Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ára í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Lífið Fleiri fréttir Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ára í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Sjá meira